Herdís íhugar alvarlega forsetaframboð Erla Hlynsdóttir skrifar 26. mars 2012 19:26
Doktor Herdís Þorgeirsdóttir íhugar alvarlega að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Hún segir ákvörðun sína byggja á því hvort hún fái nægan stuðning til framboðs. Herdís starfar sem lögmaður í Reykjavík. Hún er forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga og starfar mikið fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins á sviði mannréttinda. Hún bætist nú í hóp þeirra sem íhuga framboð gegn sitjandi forseta. Hópurinn Betri valkost á Bessastaði lét nýverið gera viðhorfskönnun þar sem spurt var hvern fólk vill sjá á Bessastöðum. Aðspurð segir Herdís að ástæðan fyrir því að hún hafi ekki verið með í þeirri könnun sé sú að á þeim tímapunkti hafi hún ekki verið tilbúin að tjá sig um þessi mál. „Auk þess leit ég ekki á eina skoðanakönnun sem upphaf og endi framboðs," segir hún, en játar því jafnframt að hún hafi fengið margar áskoranir. Herdís ritaði grein í Fréttablaðið á laugardag þar sem hún sagði blasa við að forsetinn myndi sitja í tuttugu ár, og að kostnaður við framboð mætti ekki fæla frá aðra hugsanlega frambjóðendur. Margir töldu greinina eins konar fyrsta skref Herdísar að framboði og hvöttu margir hana til að gefa kost á sér. Herdís segist vera að velta þeim möguleika fyrir sér að bjóða sig fram, en ákvörðunin byggi á því hversu mikla hvatningu hún fái. Hvenær sú ákvörðun liggi fyrir velti á því hversu mikinn stuðning hún fái. „Ákvörðunin mun byggja á því hvort ég finn öflugan stuðning," segir Herdís.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Sjá meira