Fimm milljarðar afskrifaðir 17. apríl 2012 06:30 Þorgeir Baldursson, sem er oft kenndur við Odda, er fyrrverandi stjórnarmaður í Landsbankanum. fréttablaðið/hag
Fyrrum eigendur Prentsmiðjunnar Odda eignuðust fyrirtækið nýverið eftir að hafa keypt það á 500 milljónir króna. Áður en Oddi var seldur höfðu Arion banki og Landsbankinn afskrifað um fimm milljarða króna af skuldum móðurfélags Odda, eignarhaldsfélagsins Kvosar ehf. Um er að ræða Þorgeir Baldursson, sem var stærsti einstaki eigandi Kvosar fyrir fjárhagslega endurskipulagningu félagsins, og aðila tengda honum. DV greindi frá málinu í gær. Í byrjun desember síðastliðnum ákváðu kröfuhafar Kvosar að lækka hlutafé félagsins niður til jöfnunar á tapi. Strax í kjölfarið var samþykkt að hækka hlutaféð aftur með útgáfu nýrra hluta að fjárhæð 500 milljónir króna og greiddi Arion banki fyrir það með umbreytingu skulda í hlutafé. Í sérfræðingaskýrslu endurskoðanda sem gerð var vegna hlutafjárhækkunarinnar, og Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að Kvos hafi skuldað Landsbankanum um þrjá milljarða króna þann 1. desember síðastliðinn. Bankinn samþykkti þá að breyta 181,3 milljónum króna í nýtt hlutafé og seldi til Arion banka. Kvos skuldaði Arion banka 4,3 milljarða króna á sama tíma. Í sérfræðingaskýrslunni kemur fram að „Arion og Kvos hafa komið sér saman um að langtímaskuldir Kvosar við Arion eftir þá endurskipulagningu skulda sem fram fer með samkomulagi þessu, skuli nema kr. 2.170.377.235,-“. Til viðbótar breytti Arion 318,7 milljónum króna af kröfum sínum í nýtt hlutafé sem selt var til nýrra eigenda. Aðrar skuldir Kvosar, um fimm milljarðar króna, voru afskrifaðar.-þsj
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Sjá meira