Leirfok sem Ómar kvikmyndar sést ekki á rykmælum 20. apríl 2012 19:30
Ómar Ragnarsson segir leirstorma geisa við Hálslón á sumrin og svo komi til með að vera um alla framtíð. Þeir koma hins vegar ekki fram á mælum og telur Ómar ástæðuna vera þá að Landgræðslan mæli aðeins það ryk sem falli til jarðar en ekki það sem fjúki. Í fréttum okkar í fyrradag kom fram frá fulltrúum Landsvirkjunar og Landgræðslu að ekkert sandfok hefði orðið frá Hálslóni á fimm ára starfstíma Kárahnjúkavirkjunar. Myndir sem Ómar Ragnarsson tók hins vegar fyrir þremur árum sýna uppfok leirs frá Hálslóni. Ómar vekur athygli á því að landgræðslustjóri tali um „sandburð" og talað sé um „fallryk". Það sé vegna þess að Landgræðslunni hafi eingöngu verið falið að sjá um að gróður kaffærðist ekki í sandi. Þeir mæli þessvegna aðeins það en ekki skyggni, þótt það sé þannig að það sjái varla úr augunum og augun fyllist af ryki, segir Ómar. Á vefnum sjálfbaerni.is eru sýndir nítján fallryksmælar á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Niðurstöður mælinga í fyrrasumar sýna að fallryk mældist þá alltaf undir viðmiðunarmörkum og þau tvö tilvik á síðustu fimm árum, sem sýndu fallryk yfir viðmiðunarmörkum, eru bæði talin eiga annan uppruna, annað er rakið til torfærukeppni en hitt til foks frá Jökulsá á Fjöllum. En hvernig má það vera að leirfokið sem Ómar myndar skuli ekki mælast? Því svarar Ómar með því að verkefni Landgræðslunnar hafi verið að mæla ryk sem félli niður og gæti kæft gróður. Það sé ekki yfir mörkum. Þeir gleymi hins vegar því að fullt af ryki fari lárétt og framan í andlit manna enda hafi starfsmenn sem hafi verið að vinna fyrir Landgræðsluna á svæðinu orðið fyrir barðinu á þessu og næstum þurft að hafa grímur þegar mest hafi verið. Ómar segir ljósmynd sem hann tók yfir Hálslón í júlíbyrjun 2009 sýna að í mestu leirstormum sjáist ekki yfir lónið. Myndirnar segi allt sem segja þarf. „Það fer allt á kaf í leirstorm þegar þarna blæs eitthvað í bestu veðrunum," segir Ómar. Sveinn Runófsson landgræðslustjóri kveðst standa við þá staðhæfingu að enginn sandur hafi borist úr Hálslóni. Hann segir að ryk berist þaðan en aldrei hafi staðið til að taka á því enda skaði það ekki gróður.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira