Viðskipti innlent

Tekjurnar af Contraband stefna í 7,5 milljarða

Heildartekjurnar af Contraband, mynd Baltasar Kormáks, stefna í 60,8 milljónir dollara eða um 7,5 milljarða króna. Vefsíðan boxoffice.com áætlar að tekjurnar, verði 7,2 milljónir dollara um helgina en áður hafa selst miðar á hana fyrir 53,6 milljónir dollara.

Contraband er enn vinsæl meðal kvikmyndagesta í Bandaríkjunum. Þannig segir boxoffice að Contraband verði sjöunda mest sótta myndin í Bandaríkjunum um þessa helgi.

Miðasalan hefur verið ágæt framan af vikunni og komu þannig 2,5 milljónir dollara í kassann s.l. mánudag. Hinsvegar hefur dregið úr aðsókinni eftir því sem liðið hefur vikuna og tekjurnar fóru í tæpa 900.000 dollara s.l. fimmtudag.

Myndin The Gray með Liam Neeson í aðalhlutverki stefnir í að verða tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum þessa helgi með 18 milljónir dollara í miðasölu. Það er töluvert lægri upphæð en Contraband tók inn á sinni fyrstu helgi þarlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×