Stóðu gegn því að hækka gjaldskrá Orkuveitunnar Magnús Halldórsson skrifar 14. október 2012 19:09 Orkuveitan.
Borgarfulltrúar sem sæti áttu í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur stóðu gegn því að hækka gjaldskrá fyrirtækisins. Fyrir vikið fylgdi gjaldskráin ekki verðbólgu sem gróf undan grunnrekstri fyrirtækisins. Úttektarnefnd um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur, sem kynnti skýrslu sína um fyrirtækið síðastliðinn miðvikudag, fjallar ítarlega um gjaldskrá fyrirtækisins í skýrslu sinni, og þá ákvörðun stjórnar fyrirtækisins, þar sem borgarfulltrúar sátu, að hækka ekki gjaldskrána samhliða verðbólgu, árum saman. Eins og sést á þessari mynd (sjá sjónvarpsfrétt, hér) fylgdi gjaldskráin ekki verðbólgu, einkum frá árinu 2006 og fram yfir hrun fjármálakerfisins og krónunnar. Þetta gróf undan grunnrekstri fyrirtækisins á sama tíma og fyrirtækið var skuldum hlaðið. Í skýrslunni er haft eftir Guðmundi Þóroddssyni, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, að arðgreiðslur og þjónustugjöld hafi verið ákveðin af stjórn, og stundum hafi arðgreiðslur verið lækkaðar eða hækkaðar, „til að komast hjá gjaldskrárhækkunum" Í skýrslunni eru deildar meiningar milli stjórnenda Orkuveitunnar og síðan borgarfulltrúa, um hvernig gjaldskráin hafi átt að vera, augljósar. Þannig er haft eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að stjórnendur Orkuveiturnar hafi ekki verið sáttir við þá ákvörðun allrar borgarstjórnar að „frysta gjaldskrár í kjölfar bankahrunsins“, og fannst við ganga of nærri rekstrinum, eins og orðrétt segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundur komast að því að það hafi verið rangt að hækka ekki gjaldskrár, í takt við hækkun skuldbindinga og þróun verðbólgu, svo að grunnrekstur fyrirtækisins héldist í það minnsta heilbrigðari. Skulir Orkuveitu Reykjavíkur hækkuðu úr 17,7 milljörðum árið 2002 í 224,3 milljarða króna árið 2010, að því er fram kemur í skýrslunni.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent