Var þá hefnt á Alþingi ... Birna Þórðardóttir skrifar 24. janúar 2012 13:15 Í fásinninu hér áður og fyrr var sérstök íþrótt að hefna þess í héraði sem hallast hafði á Alþingi, dundaði margur sér við það svo jafnvel dauðum var stefnt og argaþrasið flutt til konungs í Köben, ef um allt þraut innanlands. Nú er allt viðsnúið í því sem öðru og virðast menn nú hefna á Alþingi þess sem hallast í héraði. Það var nöturlegt að fylgjast með umræðu og ekki síður atkvæðagreiðslu á Alþingi föstudaginn 20. jan. sl. um frávísunartillögu á tillögu Bjarna Benediktssonar sem fella vill niður ákæru á hendur Geir H. Haarde - skrítið! Ekki það að ég sé sérlega hlynnt frávísunartillögum, en í málflutningi manna - ekki síst þeirra er nærri mér standa pólitískt - sem studdu frávísunartillöguna þótti mér sem að baki lægi ákveðin hefnd. Þau sem kjörin voru á þing til þess að upplýsa, fletta ofan af, skapa gegnsæi og svo framvegis og svo framvegis, er þetta allt kjaftæði eitt og húmbúg - er það svo, að þegar á hólminn er komið sé það stoltið sem ræður - ekki síst hið særða stolt? Er það gamla góða egóið sem tekur völdin? Mér hefur aldrei þótt stórmannlegt að skýla sér á bakvið aumingjaskap annarra, hvað þá aumingjagang kratanna í Samfylkingunni sem ekki þorðu að gangast við eigin ábyrgð og ákæra eigið fólk fyrir mistök í starfi, ekki síst fyrrum flokksformann. Nóg um það. En að standa upp og styðja í raun þau öfl er komu okkur á kaldan klaka er mér óskiljanlegt. Annað er með ráðherrann sem flaug heim til að greiða atkvæði og mögulega hindra með því að vera kallaður fyrir sem vitni, komi ekki til þess að réttað verði yfir Geir. Það eru fleiri sem trúlega kæmi til greina að kalla fyrir sem vitni - verði réttað. Ekki er ég saksóknari og veit ekki hvað saksóknari ætlar sér. En verði þessi atkvæðagreiðsla til þess að hindra - að því er orðið gæti - að upplýsingar berist almenningi - og þá á ég við raunverulegar upplýsingar, ekki fimbulfamb fléttusmiða í anda forseta - þá er illa komið fyrir þeim er fóru með fullar hendur fagurra loforða inn á þing. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Í fásinninu hér áður og fyrr var sérstök íþrótt að hefna þess í héraði sem hallast hafði á Alþingi, dundaði margur sér við það svo jafnvel dauðum var stefnt og argaþrasið flutt til konungs í Köben, ef um allt þraut innanlands. Nú er allt viðsnúið í því sem öðru og virðast menn nú hefna á Alþingi þess sem hallast í héraði. Það var nöturlegt að fylgjast með umræðu og ekki síður atkvæðagreiðslu á Alþingi föstudaginn 20. jan. sl. um frávísunartillögu á tillögu Bjarna Benediktssonar sem fella vill niður ákæru á hendur Geir H. Haarde - skrítið! Ekki það að ég sé sérlega hlynnt frávísunartillögum, en í málflutningi manna - ekki síst þeirra er nærri mér standa pólitískt - sem studdu frávísunartillöguna þótti mér sem að baki lægi ákveðin hefnd. Þau sem kjörin voru á þing til þess að upplýsa, fletta ofan af, skapa gegnsæi og svo framvegis og svo framvegis, er þetta allt kjaftæði eitt og húmbúg - er það svo, að þegar á hólminn er komið sé það stoltið sem ræður - ekki síst hið særða stolt? Er það gamla góða egóið sem tekur völdin? Mér hefur aldrei þótt stórmannlegt að skýla sér á bakvið aumingjaskap annarra, hvað þá aumingjagang kratanna í Samfylkingunni sem ekki þorðu að gangast við eigin ábyrgð og ákæra eigið fólk fyrir mistök í starfi, ekki síst fyrrum flokksformann. Nóg um það. En að standa upp og styðja í raun þau öfl er komu okkur á kaldan klaka er mér óskiljanlegt. Annað er með ráðherrann sem flaug heim til að greiða atkvæði og mögulega hindra með því að vera kallaður fyrir sem vitni, komi ekki til þess að réttað verði yfir Geir. Það eru fleiri sem trúlega kæmi til greina að kalla fyrir sem vitni - verði réttað. Ekki er ég saksóknari og veit ekki hvað saksóknari ætlar sér. En verði þessi atkvæðagreiðsla til þess að hindra - að því er orðið gæti - að upplýsingar berist almenningi - og þá á ég við raunverulegar upplýsingar, ekki fimbulfamb fléttusmiða í anda forseta - þá er illa komið fyrir þeim er fóru með fullar hendur fagurra loforða inn á þing.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar