Viðskiptaráð: Árangurinn þyrfti að vera meiri Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. september 2012 17:13 Ríkisstjórnin á ríkisráðsfundi.
Það er óumdeilt að árangur hefur náðst í ríkisfjármálum frá árinu 2008, segir í nýjum pistli sem birtist á vef Viðskiptaráðs í dag. Sá árangur er hins vegar ekki í samræmi við upphaflegar áætlanir sem endurspeglast meðal annars í fyrirhuguðum skattahækkunum næsta árs, þvert á fullyrðingar um að til þeirra þyrfti ekki að koma. Viðskiptaráð segir að bætt staða hagkerfisins frá hruni skýrist einkum af þremur þáttum. „Í fyrsta lagi setningu neyðarlaga sem kom í veg fyrir að óhóflegar byrðar féllu á ríkið. Í öðru lagi sérlega hagfelldra aðstæðna fyrir útflutningsgreinar sem viðheldur fjárfestingu, störfum og þar með skattgreiðslum. Í þriðja lagi aðhalds í ríkisfjármálum, í samræmi við áætlun AGS, þó deila megi um áhrif einstakra ákvarðana sem teknar hafa verið á þeim grunni," segir í pistlinum.Vara við kosningaloforðum Viðskiptaráð segir að þó fjárlög næsta árs sýni betri stöðu nú en fyrir fjórum árum sé staða ríkissjóðs enn þung og ríkt tilefni til áframhaldandi aðhalds. Nýlegar fregnir af stöðu Íbúðalánasjóðs endurspegla vel hversu viðkvæmt ástandið er. Allt útlit er fyrir að ríkissjóður þurfi að leggja minnst fjórtán milljarða inn í sjóðinn til viðbótar við 33 milljarða árið 2010. Viðskiptaráð segir að full þörf sé á að stjórnmálaflokkarnir hafi þessa stöðu ríkissjóðs í huga við mótun útgjaldaloforða vorsins, en kosningvor er í vændum. Það sé sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að árangur síðustu ára hefur að einhverju leyti skapað jákvæðari umræðu um stöðu ríkissjóðs en uppgjör síðasta árs og framtíðarverkefni gefi tilefni til.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira