Karl segir siðferðisgildin ekki horfin úr þjóðarvitundinni 8. apríl 2012 11:40 Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. MYND/Tru.is
Hátíðarguðsþjónustum er nú að ljúka um allt land, en í Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, predikaði í Dómkirkjunni kl. átta í morgun. Þar sagði hann gömlu, góðu siðferðisgildin ekki horfin úr vitund þjóðarinnar. Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, flutti hátíðarpredikun sína í morgun og gerði upprisuna að umtalsefni sínu. Hann sagði kristindóminn grundvallast á henni. Hún væri raunveruleiki í heiminum. Kristin trú sé ekki skoðanir eða álit á hinu og þessu sem fangar hug þeirra sem hugsa og skrafa, blogga og blaðra hverju sinni. „Hún stendur og fellur með sannleiksgildi þeirrar fréttar sem sögð er um alla jörð í dag," sagði Karl. „Og endurómar fregnina sem hljómaði við opna, tóma klettagröf í Jerúsalem hinn fyrsta páskadag." Þá talaði Karl um skírnarathöfn á heimili í Reykjavík og spurði hvaða sögu það segði að þrátt fyrir skefjalausan áróður gegn kirkjunni, hinum kristna sið og trúarhefðum, þá lifi flestar fjölskyldur í landinu slíkar helgistundir um ársins hring. Flest ung börn væru enn borinn til skírnar og nú í vor hafi mikill meirihluti unglinga á 14. aldurási fermst, þrátt fyrir andróðurinn og svívirðingarnar sem þau þurfi nú einatt að þola frá umhverfinu, eins og biskup orðaði það. Hann sagði því trúna og hinn kristna sið virðast vera ómissandi þátt í lífi þorra fjölskyldna í landinu. Gömlu góðu siðferðisgildin væru ekki horfin út vitund þjóðarinnar og því fari fjarri að hér hafi orðið siðrof. „Kristur er upprisinn," sagði Karl. „Það er góða fréttin sem gefur fyrirheit um návist og handleiðslu í nepju og hretum lífsins og skuggalendum sorgar og dauða, um huggun og sigur í óförum öllum. Tökum okkur stöðu á þessum traustu fyrirheitum, og leitumst við að verða sjálf hluti af góður fréttinni, með viðmóti okkar og orðum, með líferni, gildismati, breytni." Karl sagði kirkjuna vera ein grunnstoða hins góða mannúðar-samfélags. Stór hluti þjóðarinnar haldi enn tryggð við hinn kristna sið, þrátt fyrir allt, og vilji sjá kirkjuna og hið kristna uppeldi í trú og sið lifa og dafna með þjóðinni.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira