NBA deildin malar gull en NFL deildin er langstærst 14. nóvember 2012 12:00 David Stern hefur stýrt NBA deildinni í tæplega þrjá áratugi. AP
Rekstur NBA deildarinnar í körfuknattleik gengur vel og David Stern framkvæmdastjóri deildarinnar gerir ráð fyrir að heildarvelta deildarinnar aukist um 20% á þessu keppnistímabili. Heildarvelta NBA deildarinnar fer í fyrsta sinn yfir 5 milljarða bandaríkjadollara eða sem nemur um 645 milljörðum ísl. kr. Stern fór yfir stöðu deildarinnar á fundi sem fram fór í New York. Þar greindi hann frá því að NBA deildin gæti farið í útrás til Evrópu eftir áratug. Og ef það yrði að veruleika yrðu nokkur lið sett á laggirnar í Evrópu á sama tíma. „Það væri skynsamlegast að hafa Evrópudeild þegar að því kemur, það verður ekki eitt lið stofnað í þessum tilgangi," sagði Stern en hann mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri NBA deildarinnar þann 1. febrúar árið 2014 á 30 ára starfsafmæli sínu. Adam Silver, sem hefur verið hægri hönd Stern frá árinu 2006, mun taka við starfinu. NBA deildin er í þriðja sæti í Bandaríkjunum þegar litið er á heildarveltu stærstu atvinnumannadeilda þar í landi. NFL deildin er með mestu veltuna eða 9 milljarða dali eða sem nemur 1.160 milljörðum ísl. kr. Hafnarbolti eða MLB deildin er öðru sæti með 7,5 milljarða dala veltu á ári eða sem nemur 970 milljarða kr. Íshokkídeildin í Norður-Ameríku, NHL, er með 426 milljarða kr. ársveltu. Tekjur NBA deildarinnar hafa aukist með auknum áhuga í löndum á borð við Kína, Tyrklandi, og Brasilíu. Sýnt er frá NBA deildinni í 216 löndum.
NBA Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjá meira