Fleiri ríki í Bandaríkjunum íhuga að taka upp eigin mynt 6. febrúar 2012 06:34
Óvissan um framtíð dollarans hefur valdið því að fleiri ríki í Bandaríkjunum eru að íhuga að taka upp eigin mynt. Tillögur um upptöku eigin myntar eru til skoðunar í 13 ríkjum. Meðal þeirra eru Minnesota, Tennessee, Iowa og Suður Karólína. Fyrir þremur árum voru aðeins þrjú ríki að íhuga eigin mynt. Ástæðan eru áhyggjur um að dollarinn geti hrunið í náinni framtíð. Ríkið Utah er komið lengst í áttina að eigin mynt en Gary Herbert ríkisstjóri þar staðfesti lög í fyrra sem kveða á um að þeir gull- og silfurpeningar sem myntslátta Bandaríkjanna gefur út væru jafngild mynt og dollarinn í öllum viðskiptum í Utah. Þau ríki sem ætla sér að taka upp eigin mynt verða að notast við gull og silfurpeninga. Stjórnarskrá Bandaríkjanna bannar einstökum ríkjum að prenta eigin seðla eða slá eigin myntir. Hinsvegar er að finna í stjórnarskránni ákvæði sem heimilar öllum ríkjum að taka gull og silfur sem greiðslu upp í skuldir.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira