Evrópuþingið samþykkir viðskiptaþvinganir gegn Íslendingum Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. september 2012 15:55
Evrópuþingið samþykkti í dag að beita Íslendinga og Færeyinga viðskiptaþvingunum vegna makríldeilunnar, eftir því sem fram kemur í fréttum BBC. Íslendingar og Færeyingar hafa verið gagnrýndir harðlega á síðustu dögum fyrir of miklar veiðar úr makrílstofninum og er talið að þær séu ósjálfbærar. Evrópuþingið er stofnun innan Evrópusambandsins. Þó refsiaðgerðirnar hafi verið samþykktar á Evrópuþinginu er enn aðeins um tillögur að ræða. Því er ekki þar með sagt að þeim verði beitt gegn Íslendingum. Tillögurnar eiga eftir að fara fyrir ráðherraráðið sem þá þarf að samþykkja þær. Það yrði að öllum líkindum ekki gert fyrr en í október. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur greint frá samþykkti sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins fyrr á þessu ári tilskipun um refsiaðgerðir gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar úr sameiginlegum stofnum sem deilt er um, eins og til dæmis makríl, en tilskipunin felur ekki aðeins í sér löndurbann á íslensk skip heldur einnig viðskiptaþvinganir eins og takmarkanir á sölu fiskiafurða. Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, hefur einnig sagt að Norðmenn myndu einnig grípa til ráðstafana. Hún hefur hins vegar ekki viljað gefa upp hvers kyns aðgerðir það eru. Hér má sjá frétt BBC um málið.
Mest lesið „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Viðskipti innlent Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Viðskipti innlent Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Viðskipti innlent Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Viðskipti innlent Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Viðskipti innlent Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Viðskipti innlent Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Atvinnulíf Fleiri fréttir Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Sjá meira