Veiðigjöldin fara í stuðning við barnafjölskyldur BBI skrifar 12. september 2012 12:02 Mynd/Jón Sigurður
Veiðigjöldin sem samþykkt voru á Alþingi í vor munu skila ríkissjóði 5,8 milljörðum króna meiri tekjum en áður hafði verið gert ráð fyrir á árinu 2013. Þessar tekjur munu standa undir fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar og verður að mestu leyti varið í vegaframkvæmdir, rannsókna- og tæknisjóði og stuðning við tekjulægri barnafjölskyldur og fjölskyldur í greiðsluvanda. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi næsta árs sem kynnt var á Alþingi í gær. Þar kemur fram að veiðigjöldin séu þáttur í nýtilkomnum tekjuöflunaraðgerðum ríkissjóðs. Veiðigjöldin koma til viðbótar hinu almenna gjaldi sem hefur verið innheimt síðastliðin ár. Gjaldið er reiknað af rentu í fiskveiðum og fiskvinnslu. Fyrst í stað verða gjöldin 50% af rentunni en munu á næstu árum hækka upp í 65%. Í frumvarpinu kemur fram að veiðigjöldin verði önnur stoðin af tveimur undir fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hin stoðin verður fjármagnið sem ríkið fær til baka af því sem lagt var fram til að endurfjármagna bankakerfið. Enn liggur hvorki fyrir hvenær eignarhlutir ríkisins í bönkunum verða seldir né hvert verðmæti þeirra er. Hins vegar er gert ráð fyrir því að veiðigjaldið skili ríkinu 5,8 milljörðum í auknar tekjur á árinu. 3,8 milljörðum af því verður ráðstafað í tiltekin fjárfestingarverkefni og bera vegaframkvæmdir og viðhald samgöngukerfisins þar hæst. 2 milljörðum verður svo varið í ný áherslumál ríkisstjórnarinnar sem eru einkum stuðningur við barnafjölskyldur og fjölskyldur í greiðsluvanda.
Tengdar fréttir Fjármálaráðherra: Ríkið er að sigla örugglega út úr kreppunni Fjármálaráðherra vill hækka barnabætur, lengja fæðingarorlofið og stendur við átján prósenta hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Þetta er meðal þess sem hún kynnti í nýjum fjárlögum sem hún segir að megi líta á sem kosningafjárlagafrumvarp. Hún segir ríkið vera að sigla örugglega út úr kreppunni. 11. september 2012 18:45 Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Sjá meira
Fjármálaráðherra: Ríkið er að sigla örugglega út úr kreppunni Fjármálaráðherra vill hækka barnabætur, lengja fæðingarorlofið og stendur við átján prósenta hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Þetta er meðal þess sem hún kynnti í nýjum fjárlögum sem hún segir að megi líta á sem kosningafjárlagafrumvarp. Hún segir ríkið vera að sigla örugglega út úr kreppunni. 11. september 2012 18:45