Var það andsvar Ögmundar sem jók gubbupestina? Kristján Már Unnarsson skrifar 25. apríl 2012 12:20 Kristján L. Möller. Lá heima í pest í gærkvöldi undir umræðum frá Alþingi.
Kristján L. Möller, helsti baráttumaður Vaðlaheiðarganga, segir að gubbupest sín hafi aukist þegar hann hlustaði rúmfastur í gærkvöldi á ræður sumra á Alþingi um jarðgöngin. Kristján gefur í skyn að það hafi verið andsvar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra sem hafði þessi áhrif. Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, var meðal frummælanda á fundi sem Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins héldu í morgun um opinberar fjárfestingar í ljósi rammaáætlunar, samgönguáætlunar og nýs Landspítala. Kristján ræddi meðal annars um Vaðlaheiðargöng og kvaðst hafa legið heima með pest í gærkvöldi en fylgst með umræðum frá Alþingi um málið í sjónvarpi. Sagði Kristján að orð sumra hefðu haft þau áhrif að gubbupestin jókst. En hvað var það sem fór svona illa í Kristján? Í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Kristján að ýmsar ræður hefðu verið haldnar, þó ekki mjög margar, en þar hefðu menn meðal annars rangtúlkað staðreyndir, og kannski vísvitandi farið með rangt mál um forsendur. Spurður hvað hann hafi verið óhressastur með svarar Kristján: „Ég ætla nú ekkert að fara út í einstaka liði en ég tók eftir því að innanríkisráðherra fór í andsvar við fjármálaráðherra sem flutti málið. Ég tók meðal annars eftir því." Kristján kveðst ekki vilja fara nánar út í þetta en nefnir að Vaðlaheiðargöngin hafi verið sett í stöðugleikasáttmálann vorið 2009. „Og ég var á fundi með innanríkisráðherra á Akureyri þar sem hann sagði, og fundaði með fulltrúum þar, og endaði fundinn með því að við skyldum ýta málinu af stað og fara á fulla ferð. Og eftir því var unnið. En síðan sjáum við þau andmæli sem verkið fær, meðal annars hjá innanríkisráðherra," sagði Kristján L. Möller.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira