Átján tillögur um nýtt fangelsi 25. apríl 2012 13:39 Ögmundur Jónasson er ráðherra dómsmála.
Átján tillögur bárust í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík en frestur til að skila tillögum rann út 16. apríl síðastliðinn. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í dag til að hefja mat á tillögunum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Logi Már Einarsson, formaður Arkitektafélags Íslands, undirrituðu samning um útfærslu hönnunarsamkeppninnar 4. janúar á þessu ári. Dómnefnd hafði þá lokið gerð samkeppnislýsingar og mun hún á næstu vikum fara yfir tillögurnar og velja tillögu sem byggt verður á. Dómnefnd skipa: Fyrir hönd ráðherra Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður, Páll E. Winkel fangelsismálastjóri og Pétur Örn Björnsson arkitekt og tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands, arkitektarnir Gylfi Guðjónsson og Hildur Gunnarsdóttir. Dómnefnd skal hafa lokið störfum eigi síðar en 4. júní. Verður þá tilkynnt hvaða tillaga hefur orðið fyrir valinu og jafnframt opnuð sýning á öllum tillögunum. Í framhaldi af því yrði samið við hönnunarteymi verðlaunatillögunnar um fullvinnslu teikninga. Nýja fangelsið á Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Gert er ráð fyrir 56 rýmum fyrir fanga og mun byggingin leysa af hólmi Hegningarhúsið í Reykjavík og fangelsið í Kópavogi.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira