Skilvísir geti notið þess í kjörum 15. ágúst 2012 11:00 Samúel Ásgeir White
Creditinfo á Íslandi hefur ýtt úr vör nýrri þjónustu þar sem áhætta einstaklinga á því að enda á vanskilaskrá er metin. Vonast fyrirtækið til þess að skilvísir einstaklingar geti nýtt sér áhættumat frá fyrirtækinu til að fá betri kjör í viðskiptum. „Þetta er stór nýjung í íslensku viðskiptalífi,“ segir Samúel Ásgeir White, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Creditinfo, og bætir við að það sé vel þekkt í nágrannalöndum Íslands að einstaklingar láti gera slíkt áhættumat sem oft sé krafist þegar einstaklingar sækja um reikningsviðskipti, lán eða annað þess háttar. „Þetta býður einnig upp á það að Íslendingar sem eru með sín fjármál á hreinu, og fá þar með gott áhættumat, geta nýtt sér matið til að fá betri kjör í viðskiptum. Það er með öðrum orðum hægt að umbuna þeim sem eru skilvísir og með sitt á hreinu, til dæmis við lántöku,“ segir Samúel og heldur áfram: „Við erum búin að vera að þróa áhættumatið í nokkur ár en það verður aðgengilegt fyrir einstaklinga á næstu vikum í gegnum vefsíðu okkar. Það eru hins vegar nokkur fyrirtæki þegar byrjuð að innleiða þjónustuna með það fyrir augum að hafa áhættumatið til hliðsjónar við ákvarðanir um lánveitingar.“ Áhættumat Creditinfo flokkar einstaklinga, sem ekki eru nú þegar í alvarlegum vanskilum, í áhættuhópa sem byggja á líkunum sem Creditinfo telur á því að viðkomandi lendi í alvarlegum vanskilum á næstu tólf mánuðum. Reiknilíkan fyrirtækisins byggir á fjölmörgum misveigamiklum þáttum en í hópi þeirra eru aldur, búseta, upplýsingar úr skatta- og útsvarsskrá, upplýsingar um söguleg vanskil og tengsl við fyrirtæki. Samúel segir að líkanið byggi á mjög ýtarlegum gagnagrunni Creditinfo en fyrirtækið hefur um árabil áhættumetið fyrirtæki á sama hátt og nú stendur til að gera með einstaklinga. Þá segir hann að spástyrkur reiknilíkansins sé mjög mikill en það byggir á samráði við erlenda sérfræðinga. Creditinfo hefur gilt starfsleyfi frá Persónuvernd sem er skilyrði fyrir skráningu og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust.- mþl
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira