Mæla gegn aðskilnaði á bankastarfsemi 21. apríl 2012 09:00 Samstaða er um það á Alþingi að banna viðskiptabönkum að stunda fjárfestingarbankastarfsemi.
Aðskilnaður viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi á Íslandi myndi fela í sér umtalsverðan kostnað fyrir lántakendur og fjármagnseigendur. Þetta er mat greiningardeildar Arion banka sem gefið hefur út skýrslu um þá hugmynd að aðskilja viðskipta- og fjárfestingabanka. Fréttablaðið greindi frá því 19. mars síðastliðinn að full samstaða hefði skapast um það á Alþingi að aðskilja viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi með lögum. Í greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögu um slíka aðgerð segir að innlán viðskiptabanka, sem hafa bakábyrgð frá ríkinu, hafi í aðdraganda bankahrunsins verið notuð í glæfralegar og jafnvel óarðbærar fjárfestingar, meðal annars í fyrirtækjum nátengdum viðkomandi fjármálastofnunum. Vegna þeirrar sérstöku tryggingar sem innlán njóti sé rík ástæða til að aðskilja hefðbundna bankastarfsemi frá áhættusækinni fjárfestingarstarfsemi. Svipuð umræða hefur átt sér í stað í flestum nágrannaríkjum Íslands en skýrsluhöfundar benda á að stærð íslenska bankakerfisins skeri sig ekki lengur úr í alþjóðlegum samanburði auk þess sem fjárfestingabankastarfsemi íslensku bankanna sé afar lítil. Því sé vandséð að aðskilnaður sé aðkallandi eins og sakir standa þótt innlendur fjármálamarkaður geti vissulega breyst. Skýrsluhöfundar leggja því til að vilji stjórnvöld gera bankastarfsemi öruggari sé skynsamlegra að hækka lágmarkseiginfjárkröfur íslenskra banka, horfa í auknum mæli á gæði eiginfjár og lausafjárstöðu bankanna og setja reglur um hámarksvogun. Þá mætti skoða að takmarka erlenda starfsemi sem og eigin fjárfestingar banka.- mþl
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira