Reiknar útgerðinni 70% af 75 milljarða hagnaði 2011 21. apríl 2012 09:30 Arðsemi veiða og vinnslu sjávarútvegsins er með ágætum um þessar mundir. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. fréttablaðið/óskar
Sjávarútvegsfyrirtæki halda eftir 53,5 milljörðum af hagnaði ársins 2011 samkvæmt útreikningum ráðuneytisins. Ríkið fær tæp 30% eða 21,5 milljarða. Gengur þvert á útreikninga banka og endurskoðunarfyrirtækis. Útreikningar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á áhrifum frumvarps um veiðigjald fyrir árið 2011, sýna að útgerðin í landinu myndi halda eftir rúmlega 53 milljörðum króna í hagnað fyrir skatta og eftir greiðslur veiðigjalds til ríkisins. Veiðigjald útgerðarinnar til ríkisins myndi nema 21,5 milljörðum króna. Skipting hagnaðar er því 70/30 útgerðinni í vil. Þessi niðurstaða byggir á spá sérfræðinga ráðuneytisins fyrir afkomu sjávarútvegsins fyrir árið 2011 og kemur fram í minnisblaði til atvinnuveganefndar Alþingis. Spáin um afkomu greinarinnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, er talin frekar nærfærin. Þessi niðurstaða gengur þvert á útreikninga endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte, Íslandsbanka og Landsbankans um gjaldtökuna og áhrif hennar. Eins og komið hefur fram er niðurstaða Deloitte að ríkissjóður hefði tekið til sín 105% af hagnaði sjávarútvegsfyrirtækjanna á árunum 2001-2010. Landsbankinn birti nýlega sína útreikninga þar sem koma fram miklar áhyggjur af þeim afleiðingum sem samþykkt frumvarpanna tveggja hefðu fyrir íslenskan sjávarútveg og samfélag. Gert er til dæmis ráð fyrir fjöldagjaldþrotum minni fyrirtækja. Íslandsbanki hafði fyrr birt kolsvarta spá um afleiðingar gjaldtökunnar. Tilefni greiningar ráðuneytisins er ekki síst sú að svara gagnrýni sem fyrirtækin hafa sett fram á síðustu vikum. Ráðuneytið telur jafnframt að margir greiningaraðilar reikni til skuldir vegna hluta sem eru óskyldir rekstri útgerðanna, til að mynda vegna hlutabréfakaupa og annarra slíkra skulda. Því greini bankarnir ekki ástæður skuldsetningar og við þetta gerir ráðuneytið athugasemdir. Heimildir Fréttablaðsins greina frá að sérfræðingar ráðuneytisins telji sig hafa sýnt fram á að greinin haldi síst minna eftir af hagnaði sínum en á undanförnum árum. Því er ljóst að himinn og haf skilur á milli í útreikningum, allt eftir því hver heldur á reiknistokknum.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Vara við nálum í hrekkjavökunammi „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Sjá meira