Yrði mikil þjónustuskerðing við neytendur 21. apríl 2012 10:30 Móttökustöð Endurvinnslunnar við Knarrarvog gæti orðið fyrirmynd annarra endurvinnslustöðva verði samstarfi við Sorpu slitið. Fréttablaðið/Pjetur
Áform Endurvinnslunnar um að hætta samstarfi við Sorpu um móttöku á endurvinnanlegum drykkjarumbúðum myndu skerða þjónustu við neytendur og gengju gegn hugmyndum um að draga úr notkun á einkabílum, segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnarformaður Sorpu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær telja forsvarsmenn Endurvinnslunnar að fyrirtækið tapi tugum milljóna króna á ári vegna þess að neytendur komist upp með að oftelja fjölda umbúða sem skilað er til Sorpu. „Að fækka móttökustöðvum úr sjö í þrjá yrði ofboðsleg þjónustuskerðing,“ segir Oddný. Hún vonast til þess að Endurvinnslan endurskoði ákvörðun sína um að slíta samstarfi sínu við Sorpu. Endurvinnsla á dósum og flöskum er gjarnan það sem dregur fólk á stöðvar Sorpu, en þá notar það gjarnan ferðina til að fara með fleira sem hefur safnast upp, segir Oddný. Hún óttast að verði af þessari breytingu geti það dregið úr endurvinnslu. Hætti Sorpa að taka á móti dósum og flöskum mun það hafa neikvæð áhrif á fjárhag fyrirtækisins, segir Oddný. Þá minnki einnig þörf fyrir starfsmenn, enda móttaka umbúðanna atvinnuskapandi. Spurð hvort Sorpa geti brugðist við umkvörtunum Endurvinnslunnar um oftalningu umbúða segir Oddný að eflaust sé hægt að finna leiðir til að bregðast við því. Hvað sem því líði sé ákvörðun stjórnenda Endurvinnslunnar afar óheppileg og mikil afturför í þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. - bj
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira