Forstjóri Ölgerðarinnar fagnar samkeppni á bjórmarkaði Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 1. apríl 2012 18:49
Forstjóri Ölgerðarinnar fagnar aukinni samkeppni á bjórmarkaði. Hann segir fyrirtækið ekki standa í vegi fyrir því að nýir aðilar komist inn á markaðinn. Í fréttum Stöðvar 2 á föstudaginn kom fram að eigendur tveggja örbrugghúsa saka Vífilfell og Ölgerðina um að einoka markaðinn fyrir kranabjór hér á landi og hefur annað fyrirtækið sent samkeppniseftirlitinu erindi vegna þessa. Forstjóri Ölgerðarinnar segir mikla samkeppni á markaðnum. „Það hafa fyrst og fremst verið tveir aðilar á markaði, en nú eru nýjir komnir inn sem ég fagna enda spennandi að fá almennilega bjórmenningu á Íslandi," segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. Örbrugghúsin saka meðal annars stóru fyrirtækin tvö um að gera samninga við staði um að selja eingöngu bjórtegundir frá þeim og að fyrirtækin fjárfesti í innanstokksmunum vínveitingastaða, á borð við bjórdælur og kæla. Andri telur að slíkt eigi sér ekki stað Spurður hvort hann geri það erfiðara fyrir nýja aðila að komast á markað, svarar Andri því til að hann líti ekki svo á. „Ég tel svo ekki vera. Við höfum á undanförnum árum tekið okkar samninga í gegn með tilliti til nýlegra laga um samkeppni," segir Andri Þór sem bætir við: „Við viljum helst að samkeppni sé sem mest." Árni Stefánsson, forstjóri Vífilfells, gat ekki veitt viðtal þegar fréttastofa náði í hann í dag.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Útför Björgvins Halldórssonar Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira