
Rúv heillum horfið
Þrjú ár eru síðan formaður slitastjórnar Glitnis tók við því starfi. Ári síðar var farið með miklu offorsi með stefnur á hendur stjórnendum og eigendum bankans með miklum tilkostnaði og beinum útsendingum án þess að nokkuð hefðist uppúr því.
Nú virðist sama upp á teningnum. Nú á að ná inn milljörðum og að sögn liggja fyrir sannanir um ábyrgð þeirra sem í hlut eiga. Stefnan er lesin upp orðrétt í Kastljósi Ríkisútvarpsins, þann 12. janúar síðastliðinn án nokkurra athugasemda, eins og um hreinan sannleika sé að ræða.
Hvað með hlutleysisreglur Ríkisútvarpsins, hugsanleg tengsl veittra upplýsinga og hagsmuna heimildarmanna, sanngirni, óhlutdrægni, mismunun og þá þumalputtareglu að leyfa fólki að njóta vafans? Kannski að það hafi allt horfið með ohf-inu.
Sem fyrrverandi starfsmanni fréttastofu ríkisútvarpsins sárnar mér. Mér þykir leitt að svo slæleg vinnubrögð séu viðhöfð á þessum góða vinnustað. Enginn á skilið „fréttaafgreiðslu“ af þessum toga.
Af hverju er engra spurninga spurt? Dómarinn sá ekki sannanirnar í New York-málinu. Standast fullyrðingar um sannanir eitthvað frekar núna? Var það einfeldningsháttur af hálfu slitastjórnarinnar að láta leiða sig til New York? Af hverju fer málið fyrst til fjölmiðla áður en viðkomandi eru birtar stefnurnar? Spila himinháar greiðslur til sérstakrar lögmannsstofu slitastjórnarinnar eitthvað inní þetta? Má ekki slitastjórnarlögmannsstofan Holm & Partners við tekjutapinu? Eða ferðalögin, sem fylgja starfinu? Er það þess vegna sem þetta dregst á langinn? Af hverju er ekki málum slitastjórnarinnar vísað til ótengdra þriðju aðila í auknum mæli, líkt og tíðkast í löndunum í kringum okkur? Er það vegna þess að vinnubrögðin þola ekki skoðun óvilhallra manna?
Í siðuðu viðskiptaumhverfi væri það ekki liðið, að slitastjórn í fjármálafyrirtæki færði fjármuni úr vösum kröfuhafa og yfir í sérstaklega uppsetta lögmannsstofu í eigu sjálfra forsvarsmanna slitastjórnarinnar. Hver er annars tryggingin í því? Ætlar Steinunn Guðbjartsdóttir í mál við eigin lögmannsstofu ef lögmenn stofunnar baka kröfuhöfum Glitnis tjón? Harla ólíklegt. Væru ekki öll venjuleg fyrirtæki búin að setja spurningamerki við svona vinnubrögð?
Á mínum Rúv-árum iðaði fólk í skinninu af metnaði til að varpa ljósi á stöðu mála í samfélaginu. Við trúðum því að það væri okkar hlutverk að veita valdsmönnum og öðrum ráðamönnum landsins málefnalegt aðhald. Við töldum það skyldu okkar að ýta undir uppbyggilega rökræðu í landinu. Drottningarviðtöl voru ekki komin til sögunnar.
Undirgefni sumra fjölmiðla við skila- og slitastjórnarmenn bankanna er með ólíkindum. Þeir einfaldlega neita að mæta í viðtöl og umræðuþætti, þegar spurningarnar brenna. Það er tími smjörklípunnar. Skjótast svo í drottningarviðtöl þegar þeim sjálfum passar og skjóta ódýrum skotum á fólk sem hvorki fær tækifæri né er í stöðu til að verja sig á sama vettvangi.
Þannig hefur náðst ótrúlegt taumhald á umræðunni á Íslandi.
Skoðun

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar

Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Þjóðin stendur með sjúkraliðum
Sandra B. Franks skrifar

Vegið að íslenska lífeyriskerfinu
Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sniðgangan á Rapyd slær öll met
Björn B. Björnsson skrifar

Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka
Birgir Finnsson skrifar

Árið 2023 kemur aldrei aftur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Trumpistar eru víða
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar