Rektor mun ekki aðhafast í máli Ársæls Valfells Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. júní 2012 13:52 Háskóli Íslands. Kristín Ingólfsdóttir rektor, mun ekki aðhafast í máli lektors sem átti þátt í að leka trúnaðargögnum um þingmann.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, mun ekki aðhafast frekar í máli Ársæls Valfells, lektors við viðskiptafræðideild skólans, vegna aðildar hans að leka á trúnaðargögnum um Guðlaug Þór Þórðarson, alþingismann. Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri FME, er grunaður um að hafa brotið ákvæði um þagnarskyldu opinberra starfsmanna og ákvæði laga um fjármálafyrirtæki um bankaleynd með því að hlutast til um að trúnaðarupplýsingar um Guðlaug Þór Þórðarson, alþingismann, yrðu sendar frá Landsbankanum til DV. Er hann grunaður um að hafa kallað eftir upplýsingunum um Guðlaug Þór í krafti stöðu sinnar sem forstjóri FME. Málið var rannsakað af lögreglu og síðan sent til ríkissaksóknara, en engin ákvörðun hefur verið tekin um lyktir þess. Ársæll Valfells, lektor, aðstoðaði við að koma trúnaðarupplýsingum á framfæri og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsti aðkomu sinni að málinu. Í kjölfarið óskaði Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, eftir skriflegri greinargerð frá Ársæli þar sem hann var beðinn um að skýra mál sitt. Ársæll hefur nú skilað þessari greinargerð. „Það er ekkert í hans greinargerð sem gaf tilefni til formlegrar meðferðar eða aðgerða af hálfu skólans," segir Kristín í samtali við fréttastofu.Finnst þér eðlilegt að kennarar við háskólann taki þátt í að koma á framfæri trúnaðarupplýsingum um fjárhagsmálefni einstaklinga? „Ég get ekki, á meðan mál eru til rannsóknar, verið að tjá mig um það. Þegar málinu lýkur munum við skoða þetta ef tilefni er til. Það er ekki við hæfi að ég sé að tjá mig um mínar persónulegar skoðanir. Þetta er í rannsókn hjá þar til bærum aðilum. Ég tel að málið sé í réttum farvegi og tel ekki rétt að aðhafast neitt að svo stöddu," segir Kristín. Ársæll vildi sjálfur ekkert tjá sig um málið og neitaði að svara spurningum fréttastofu. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Napster í sölu Viðskipti erlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Microsoft og ESB í hár saman á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Sjá meira