Innlent

Innanlandsflugið aftur á áætlun

Innanlandsflug Flugfélags Íslands frá Reykjavík virðist vera á áætlun nú í morgunsárið, en hætta varð innanlandsflugi í gærkvöldi vegna hvassviðris á Reykjavíkurflugvelli.

Nú er fært til allra staða, nema hvað óvissa er enn um flug til Ísafjarðar klukkan níu, vegna vinda á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×