Íslensk olíuleitarfélög sækja um Drekann með erlendum félögum Kristján Már Unnarsson skrifar 27. mars 2012 18:54
Tveir aðskildir hópar Íslendinga undirbúa í samvinnu við erlend olíuleitarfélög að senda inn umsókn í Drekasvæðið, en frestur rennur út á mánudag. Báðir hóparnir leggja nú lokahönd á stofnun íslensks olíuleitarfélags, hvor í sínu lagi. Fyrsta olíuleitarútboð Íslendinga fyrir þremur árum skilaði tveimur umsóknum, sem báðar voru svo dregnar til baka. Útboð númer tvö stendur nú yfir og rennur frestur til að leggja inn umsókn út klukkan sextán á mánudag. Þótt jákvæðar upplýsingar hafi birst á undanförnum mánuðum um möguleika Drekasvæðisins, og meðal annars fengist staðfesting um tilvist olíu þar, ríkir mikil óvissa um hversu mikill áhugi verður á útboðinu nú, ekki síst vegna mikilla olíufunda í lögsögu Noregs að undanförnu, bæði í Barentsthafi og Norðursjó. Þannig hefur hið norska Statoil ekkert vilja gefa upp um hvort það hafi áhuga á Drekaútboðinu. Stöð 2 hefur hins vegar traustar heimildir fyrir því að vænta megi tveggja íslenskra umsókna, sem eiga það sammerkt að báðar verða í samstarfi við erlent olíuleitarfélag. Hóparnir eru aðskildir og vita lítt hvor af öðrum, og hafa báðir farið leynt með áform sín. Hóparnir eiga það einnig sameiginlegt að í forystu þeirra eru Íslendingar með þekkingu á olíumálum sem fengið hafa fjársterka innlenda aðila í lið með sér, og áforma stofnun íslensks olíuleitarfélags. Það að báðir hóparnir hyggist leggja inn umsókn í samstarfi við erlent olíuleitarfélag gefur jafnframt vonir um að útboðið nú skili meiri árangri en það fyrsta.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Sjá meira