200 einstaklingar utangarðs 17. mars 2012 08:00
Um tvö hundruð manns sem koma árlega á Vog hafa sótt sér meðferð þangað áður tíu sinnum eða oftar. Flestir glíma við geðræn vandamál. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins þurfa hátt í 150 af þessum 200 frekari úrræði frá heilbrigðis- eða félagsmálayfirvöldum eftir áfengis- og vímuefnameðferðina á Vogi. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg eru um tíu prósent með veruleg andfélagsleg vandamál eða hafa verið í fangelsi 2 ár eða lengur. Um 15 prósent eru með alvarlega, virka geðsjúkdóma og um 20 prósent með alvarlegar geðraskanir. Um 50 manns úr þessum hópi geta gert sér vonir um bata með leiðum sem boðið er upp á á Vogi. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir erfitt að skilgreina þann hóp sem er talinn „utangarðs". Um 40 til 50 einstaklingar sem eru í daglegri neyslu og stöðugri vímu koma árlega á Vog. Margir þeirra eiga í engin hús að venda. „Sumir yfirgefa heimili sín, aðrir geta ekki stofnað sín eigin," segir Þórarinn. „Oftar en ekki er þetta fólk með geðræn vandamál, fíkniefnatengd vandamál eða aðra sjúkdóma sem koma í veg fyrir að fólk geti verið í sínu eigin húsnæði." Reykjavíkurborg mun verja 40 milljónum króna í samfélagsverkefnið Borgarverði, þar sem utangarðsfólki verður veitt ýmis þjónusta. Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði, segir þó brýnt að auka úrræðin enn frekar. Meðal annars telur hann nauðsynlegt að endurskoða rekstur Gistiskýlisins við Þingholtsstræti 25, en áframhaldandi samstarfssamningur við Samhjálp var lagður fram á fundi velferðarráðs á miðvikudag.- sv
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira