Skoðun

Í upphafi nýs árs Samhjálpar

Karl V. Matthíasson skrifar
Samhjálp óskar landsmönnum öllum blessunar og friðar á árinu 2012. Allir dagar ársins 2011 eru liðnir, horfnir í aldanna skaut, en minningar þeirra lifa. Minningar sem mörgum eru erfiðar, fullar af sorg og jafnvel ósigrum. Aðrir munu horfa til ársins 2011 með blik í auga vegna þess að dagar þess gáfu þeim gleði og sigra. Það eru góðar minningar.

Samhjálp sér á hverju ári mikla og glæsilega sigra en verður einnig að lúta höfði vegna ósigra og vonbrigða sem fylgja alkóhólisma, sem kalla má sjúkdóm sorgar og vonbrigða.

Á hverjum degi er hönd Samhjálpar útrétt til fjölmargra sem líða vegna alkóhólisma og gleðilegt er að sjá hversu margir geta komist frá þeim ógnum sem áfengisbölið er.

Starf Samhjálpar byrjaði smátt. Í fyrstu var það í bílskúr og fór þaðan upp í Hlaðgerðarkot. Svo kom Kaffistofan, samkomuhaldið og rekstur Gistiskýlisins og áfangaheimila. Nú eru starfsstöðvarnar átta og gríðarlega mikil viðkoma er hjá Samhjálp. Á hverri nóttu sofa 106 manns í rúmum sem Samhjálp hefur búið um ef svo má að orði komast. Frekari upplýsingar um starfið er að finna á vefnum samhjalp.is.

Eftir eitt ár mun Samhjálp halda upp á 40 ára afmæli sitt. Viðfangsefni Samhjálpar á árinu 2012 verður að koma fjármálunum í gott horf eftir erfiðleika sem steðjað hafa að vegna kreppunnar sem bitið hefur. Samhjálp er alltaf vongóð. Nú standa yfir viðræður við Landsbanka Íslands og treystir Samhjálp yfirlýsingu bankans um nýjan sáttmála við þjóðina um samfélagslega ábyrgð. Ef vel gengur í þeim samningum verður mun auðveldara að sinna öllu því veika fólki sem til Samhjálpar leitar.

Á árunum 2012 og 2013 hyggst Samhjálp einnig safna fyrir miklum endurbótum á Hlaðgerðarkoti og bæta aðbúnað allan fyrir skjólstæðinga sína. Þess vegna mun Samhjálp nota komandi tíð til öflugri fjáraflana en verið hefur. Það átak köllum við Lífróður Samhjálpar.

Samhjálp stígur óhrædd um borð til þessa róðurs því hún nýtur velvildar og elsku í samfélaginu vegna hjálparstarfs síns, meðferðar og annars stuðnings. Eftir því sem starf Samhjálpar eflist, þeim mun öflugra verður samfélag okkar. En í öllum þeim körlum og konum sem berjast við alkóhólismann og fá bata býr gríðarlegur máttur og kraftur sem getur virkjast til góðs, blessunar og friðar fyrir þau sjálf, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Leggjumst á árar og róum á lygnan sæ gjöfulla miða. Samhjálp þakkar innilega öllum þeim sem lagt hafa starfinu lið í smáu sem stóru sem og öllum skjólstæðingum og biður Guð að blessa þau öll í lífi og leik.




Skoðun

Sjá meira


×