Þessi afmarkaða stund Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 5. júlí 2012 14:30 Rómantískt andrúmsloft eftir Braga Ólafsson.
Bækur. Rómantískt andrúmsloft. Bragi Ólafsson. Mál og menning 2012. Sex ár eru síðan Bragi Ólafsson sendi frá sér sína síðustu ljóðabók, Fjórar línur og titil, en eins og alkunna er þá er Bragi einn af þeim mönnum sem virðast jafnvígir á allar tegundir skáldskapar. Hann hefur t.a.m. skrifað ljóð, prósa, skáldsögur og leikrit. Virkastur var Bragi á ljóðvellinum á árunum 1986 til 1995, þegar bækur eins og Dragsúgur, Ansjósur, Ytri höfnin og Klink öfluðu honum allnokkurra vinsælda. Hin síðari ár hefur Bragi verið kunnari að stórum og góðum skáldsögum. Í bókinni Rómantískt andrúmsloft eru „30 og eitt ljóð“ í fjórum köflum. Æði fjölbreytt, bæði að formi og innihaldi. Sum fremur langir prósar, önnur aðeins fjórar línur. Eitt eftirlætisljóða minna í bókinni er Gullfoss, þar sem höfundur leikur á nostalgískar taugar lesandans. Muna annars ekki allir sem eru eldri en tvævetur eftir lömpunum með fossamyndunum sem prýddu flest alþýðuheimili á Íslandi á sjöunda og áttunda áratugnum? Við stöndum fyrir framan þetta stórbrotna fyrirbæri, og þegar sambýlismaður ömmu stingur klónni á enda rafmagnssnúrunnar í innstunguna á veggnum, kviknar ljós undir yfirborði fossins, og fossinn hreyfist (9). það er ekki bara fossinn sem dregur mann að þessu ljóði, heldur líka bestu eiginleikar Braga sem ljóðskálds. Undarlegar líkingarnar (amman raðar bjúgunum á diskinn eins og þau væru saltstangir!). Lágstemmd kímnin, sem þó hefur alltaf einhvern farangur. Í verkum Braga er hvorki hlegið tröllslega né innantómt, heldur fylgir eitthvað annað með. Stundum meðvirknikast (það sem einhverjir kalla aulahroll) eða vottur af beyg. Og í Gullfossi er ljóðmælandi staddur í afmæli frænda síns, sem ekki er mættur „vegna þess að það hefur eitthvað gerst innan fjölskyldunnar“. Lyktin af bjúgunum, lampinn með fossinum og „þetta sem gerðist innan fjölskyldunnar“ mynda göng sem hægt er að ferðast með um tímann. Tíminn er hugtak sem kemur aftur og aftur upp við lestur ljóðanna í Rómantísku andrúmslofti, svo jafnvel má tala um stef. Innan ljóðsins Æskuminningin (60-62) líða fjörutíu til fimmtíu ár. „Á Yongsun-bar er lokað tímabundið, vegna breytinga á innréttingum. Vegna breytinga á tímanum“ (72). Og fallegum orðum Blaise Cendrars, „Ég má engan tíma missa / ég yrki“, er gert hátt undir höfði í ljóðinu Koffort (63). Tíminn tengist vitaskuld dauðanum, þar sem okkur er víst öllum afmörkuð stund, eins og þar stendur. Í ljóðinu „Nýting tímans“ gleðst ljóðmælandi yfir dauða manns sem hann spjallaði gjarnan við þótt honum þætti það leiðinlegt: „og ég get nýtt betur þann tíma sem ég á eftir“ (19). Bragi Ólafsson er hæglátur og heillandi höfundur. Hann hefur þetta „eitthvað“ sem veldur því að maður staldrar alltaf við, til að fylgjast með og lesa það sem hann skrifar. Hingað til sýnist mér hann hafa nýtt tíma sinn vel og hann er vinsamlegast beðinn að halda því áfram. Og yrkja. Niðurstaða: Ansi hreint góð ljóðabók, þar sem allir bestu kostir skáldsins Braga Ólafssonar njóta sín.
Mest lesið Nóa-Siríus fjölskyldan fyrrverandi selur súkkulaðihöll Lífið „Við María eigum rosalega fallegt samband og erum þakklát hvort fyrir annað“ Lífið Fær ógeðistilfinningu eftir fullnægingu Lífið Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið Stjörnulífið: „Bið ekki um meira“ Lífið Íslenska stelpan sem eltir drauminn í Los Angeles Lífið Fjórir á lista Páls hættir við Lífið „Vinir mínir settu stöðugt út á mig og niðurlægðu mig“ Lífið Hugleiki Dagssyni hent út af Facebook Lífið Dýri kveður Íþróttaálfinn eftir tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira
Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið
Áhrifavaldur greiddi sextán milljónir fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum: „Hvar eru allir peningarnir?” Lífið