Viðskipti innlent

Gengi krónunnar heldur áfram að lækka

Gengi krónunnar hefur lækkað um tæp 2% frá áramótum. Gengið hefur veikst jafnt og þétt frá því í byrjun nóvember á síðasta ári að því er segir í Markaðspunktum Íslenskra verðbréfa.

Gengisvísitalan stóð í tæpum 213 stigum í nóvember en endaði í tæpum 223 stigum fyrir síðustu helgi. Hefur gengi krónunnar því lækkað um hátt í 5% á þessu tímabili.

Á síðasta ári veiktist krónan frá áramótum og fram yfir miðjan júlí en styrktist svo vegna gjaldeyrisinnflæðis tengt útflutningi sjávarafurða og tekna af ferðamönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×