OR ver sig fyrir sveiflum í álverði og vöxtum 30. janúar 2012 06:00 Orkuveitan hefur varið sig gagnvart sveiflum í álverði. Samkvæmt níu mánaða uppgjöri OR 2011 myndi 10% breyting á álverði hækka eða lækka tekjur fyrirtækisins um 7 milljarða. Fréttablaðið/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt áhættustefnu fyrir rekstur fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið lokið samningum við hollenska bankann ING um áhættuvarnir gagnvart sveiflum í álverði og vaxtabreytingum. „Þessi skref sem stjórnin hefur nú stigið miða öll í þá átt að auka stöðugleika og festu í rekstri Orkuveitunnar. Það er fyrirtækinu og orðspori þess líka afar mikilvægt að virt erlent fjármálafyrirtæki sýni stjórnun fyrirtækisins það traust að gera áhættuvarnasamning. Þar geta talsverðir fjármunir verið í húfi,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR. Í nýju stefnunni eru helstu áhættuþættir í rekstri fyrirtækisins skilgreindir auk mælikvarða við mat á þeim. Þá eru helstu aðferðir, markmið og mörk við daglega áhættustýringu tíundaðar. Meginmarkmið stefnunnar er að tryggja að OR geti sinnt grunnhlutverkum sínum með sem minnstri röskun sökum óhagstæðrar þróunar þátta sem falla utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Þá hefur verið komið á fót svokallaðri endurskoðunarnefnd stjórnar sem skal hafa eftirlit með vinnulagi við reikningsskil og endurskoðun uppgjörs. Þá mun hún fylgjast með innri endurskoðun og áhættustýringu fyrirtækisins auk þess að meta hæfi ytri endurskoðenda fyrirtækisins. - mþl
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira