Viðskipti innlent

OR ver sig fyrir sveiflum í álverði og vöxtum

Orkuveitan hefur varið sig gagnvart sveiflum í álverði. Samkvæmt níu mánaða uppgjöri OR 2011 myndi 10% breyting á álverði hækka eða lækka tekjur fyrirtækisins um 7 milljarða. Fréttablaðið/vilhelm
Orkuveitan hefur varið sig gagnvart sveiflum í álverði. Samkvæmt níu mánaða uppgjöri OR 2011 myndi 10% breyting á álverði hækka eða lækka tekjur fyrirtækisins um 7 milljarða. Fréttablaðið/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt áhættustefnu fyrir rekstur fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið lokið samningum við hollenska bankann ING um áhættuvarnir gagnvart sveiflum í álverði og vaxtabreytingum.

„Þessi skref sem stjórnin hefur nú stigið miða öll í þá átt að auka stöðugleika og festu í rekstri Orkuveitunnar. Það er fyrirtækinu og orðspori þess líka afar mikilvægt að virt erlent fjármálafyrirtæki sýni stjórnun fyrirtækisins það traust að gera áhættuvarnasamning. Þar geta talsverðir fjármunir verið í húfi,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR.

Í nýju stefnunni eru helstu áhættuþættir í rekstri fyrirtækisins skilgreindir auk mælikvarða við mat á þeim. Þá eru helstu aðferðir, markmið og mörk við daglega áhættustýringu tíundaðar.

Meginmarkmið stefnunnar er að tryggja að OR geti sinnt grunnhlutverkum sínum með sem minnstri röskun sökum óhagstæðrar þróunar þátta sem falla utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Þá hefur verið komið á fót svokallaðri endurskoðunarnefnd stjórnar sem skal hafa eftirlit með vinnulagi við reikningsskil og endurskoðun uppgjörs. Þá mun hún fylgjast með innri endurskoðun og áhættustýringu fyrirtækisins auk þess að meta hæfi ytri endurskoðenda fyrirtækisins. - mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×