Actavis gerir samning um insúlín 30. janúar 2012 14:43 Claudio Albrecht forstjóri Actavis, Ryszard Krauze stjórnarformaður Bioton og Slawomir Ziegert forstjóri Bioton.
Actavis og pólska fyrirtækið Bioton tilkynntu í dag að þau hefðu stofnað til formlegs samstarfs um þróun og skráningu á insúlíni, einnig svo kölluðum insúlínvirkum lyfjum (e.analogue insulins). Í tilkynningu frá Actavis segir að samkvæmt samningnum beri Bioton ábyrgð á þróun og framleiðslu á insúlíni en Actavis fær einkarétt til að markaðssetja það undir eigin vörumerki í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu, einnig á Íslandi. „Bæði fyrirtækin munu bjóða insúlín undir eigin nafni í Póllandi, sem er heimamarkaður Bioton," segir ennfremur. Samstarfið var kynnt sameiginlega á blaðamannafundi í Varsjá í dag af Ryszard Krauze stjórnarformanni Bioton og Claudio Albrecht forstjóra og stjórnarformanni Actavis Group. „Vegna samstarfsins mun Actavis greiða Bioton samanlagt 55,5 milljónir evra. Þar af voru 22,25 milljónir greiddar við undirritun í dag en eftirstöðvarnar verða greiddar í samræmi við ákvæði í samningi um framvindu á skráningu á mannainsúlíni, ((framleitt með samrunaerfðatækni, (e. recombined human insulin)). Samkvæmt áætlun má búast við því að sala Actavis á insúlíni fyrstu sjö árin frá markaðssetningu fari yfir 1,5 milljarð evra. Actavis og Bioton munu deila kostnaði við þróun og skráningu til helminga og einnig ágóða." Claudio Albrecht forstjóri Actavis telur að samstarfið muni auka stórlega verðmæti beggja fyrirtækja. „Bara mannainsúlín og insúlínvirku lyfin ættu að fara nærri því að auka verðmæti okkar um 900 milljónir evra. Og þökk sé samstarfssamningnum við Bioton, þá ættum við að verða meðal helstu fyrirtækja heims í framleiðslu á insúlíni." Stjórnarformaður Bioton S.A. Ryszard Krauze segir að samstarfið við Actavis muni hafa mikla þýðingu fyrir Bioton. „Sameiginlega munum við kynna nútímaleg insúlín, þar með talin insúlínvirk lyf. Undanfarin tvö ár höfum við stöðugt verið að auka sölu á vörum okkar með samningum við stór fyrirtæki í lyfjageiranum. Má þar nefna Bayer HealthCare í Kína og GlaxoSmithKline í Rússlandi. Í dag bjóðum við enn eitt stórfyrirtækið velkomið í hóp samstarfsaðila."
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira