Viðskipti innlent

Actavis gerir samning um insúlín

Claudio Albrecht forstjóri Actavis, Ryszard Krauze stjórnarformaður Bioton og Slawomir Ziegert forstjóri Bioton.
Claudio Albrecht forstjóri Actavis, Ryszard Krauze stjórnarformaður Bioton og Slawomir Ziegert forstjóri Bioton.
Actavis og pólska fyrirtækið Bioton tilkynntu í dag að þau hefðu stofnað til formlegs samstarfs um þróun og skráningu á insúlíni, einnig svo kölluðum insúlínvirkum lyfjum (e.analogue insulins). Í tilkynningu frá Actavis segir að samkvæmt samningnum beri Bioton ábyrgð á þróun og framleiðslu á insúlíni en Actavis fær einkarétt til að markaðssetja það undir eigin vörumerki í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu, einnig á Íslandi. „Bæði fyrirtækin munu bjóða insúlín undir eigin nafni í Póllandi, sem er heimamarkaður Bioton," segir ennfremur.

Samstarfið var kynnt sameiginlega á blaðamannafundi í Varsjá í dag af Ryszard Krauze stjórnarformanni Bioton og Claudio Albrecht forstjóra og stjórnarformanni Actavis Group.

„Vegna samstarfsins mun Actavis greiða Bioton samanlagt 55,5 milljónir evra. Þar af voru 22,25 milljónir greiddar við undirritun í dag en eftirstöðvarnar verða greiddar í samræmi við ákvæði í samningi um framvindu á skráningu á mannainsúlíni, ((framleitt með samrunaerfðatækni, (e. recombined human insulin)). Samkvæmt áætlun má búast við því að sala Actavis á insúlíni fyrstu sjö árin frá markaðssetningu fari yfir 1,5 milljarð evra. Actavis og Bioton munu deila kostnaði við þróun og skráningu til helminga og einnig ágóða."

Claudio Albrecht forstjóri Actavis telur að samstarfið muni auka stórlega verðmæti beggja fyrirtækja. „Bara mannainsúlín og insúlínvirku lyfin ættu að fara nærri því að auka verðmæti okkar um 900 milljónir evra. Og þökk sé samstarfssamningnum við Bioton, þá ættum við að verða meðal helstu fyrirtækja heims í framleiðslu á insúlíni."

Stjórnarformaður Bioton S.A. Ryszard Krauze segir að samstarfið við Actavis muni hafa mikla þýðingu fyrir Bioton. „Sameiginlega munum við kynna nútímaleg insúlín, þar með talin insúlínvirk lyf. Undanfarin tvö ár höfum við stöðugt verið að auka sölu á vörum okkar með samningum við stór fyrirtæki í lyfjageiranum. Má þar nefna Bayer HealthCare í Kína og GlaxoSmithKline í Rússlandi. Í dag bjóðum við enn eitt stórfyrirtækið velkomið í hóp samstarfsaðila."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×