Ákærðir fyrir óhlýðni við hafnarstjóra 9. maí 2012 08:30 Mennirnir neituðu að fjarlægja rúturnar þrátt fyrir fyrirmæli hafnarstjóra. Fréttablaðið/gva
Sýslumaðurinn á Akureyri hefur ákært tvo menn fyrir að óhlýðnast ítrekað fyrirmælum hafnarstjórans á Oddeyrarbryggju á Akureyri og starfrækja þar í óleyfi rútuþjónustu fyrir farþega skemmtiferðaskips dag einn í ágúst 2010. Annar mannanna er Björn Mikaelsson, sem um árabil gegndi stöðu yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki. Samkvæmt ákærunni fór hafnarstjórinn nokkrum sinnum fram á það við mennina með skýrum hætti að þeir fjarlægðu bíla sína, meðal annars nokkrar rútur, af hafnarsvæðinu en mennirnir sinntu því engu. Óhlýðnin þykir varða við reglugerð um Hafnasamlag Norðurlands og hafnarlög. Viðurlögin við þessum brotum eru sektir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem uppátæki Björns Mikaelssonar rata í fréttir. Hann fór í veikindaleyfi frá störfum sínum fyrir lögregluna á Sauðárkróki árið 2008 eftir skærur við sýslumanninn í bænum, sem hafði veitt honum áminningu í sex liðum fyrir að vanrækja skyldur sínar og tala ógætilega um starf sitt og undirmenn í fjölmiðlum og símtölum við yfirmenn. Hann sneri ekki aftur til starfa. Hálfu ári áður hafði Fréttablaðið greint frá því að Björn ræki bílaleigu samhliða starfi sínu fyrir lögregluna og hefði meðal annars gert það út úr lögreglustöðinni á Sauðárkróki. Sýslumaðurinn sagði þá óeðlilegt að yfirlögregluþjónn væri einnig í forsvari fyrir bílaleigu og að tekið yrði fyrir það.- sh
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira