Skuldir Víkingaheima afskrifaðar að mestu 6. janúar 2012 06:00 Safnið var opnað sumarið 2009. Það hýsir víkingaskipið Íslending, sem Reykjanesbær keypti sumarið 2002. Samanlagt skulduðu félögin tvö sem eiga og reka safnið rúmlega 600 milljónir króna í lok árs 2010. Fréttablaðið/Stefán
Skuldir tveggja félaga sem halda utan um Víkingaheima í Reykjanesbæ munu lækka um 60-70% samkvæmt uppgjörssamkomulagi þeirra við stærsta eiganda sinn, Reykjanesbæ, og lánardrottinn, Landsbankann. Félögin tvö, sem heita Íslendingur ehf. og Útlendingur ehf., skulduðu samtals um 620 milljónir króna í lok árs 2010. Í uppgjörinu mun Reykjanesbær breyta rúmlega 100 milljóna króna skuld félaganna við sig í nýtt hlutafé og eignast við það 99% eignarhlut í Íslendingi, sem er móðurfélag Útlendings. Landsbankinn mun á móti lækka skuldir samstæðunnar um nokkur hundruð milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningum Íslendings og Útlendings fyrir árið 2010 sem skilað var inn til ársreikningaskráar 30. desember síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum var SpKef sparisjóður upphaflega lánveitandi félaganna en skuldir þeirra færðust yfir til Landsbankans þegar hann tók yfir sjóðinn. Ekki er búið að ganga endanlega frá uppgjörssamkomulaginu. Víkingaheimasafnið var opnað sumarið 2009. Það hýsir víkingaskipið Íslending, sem Reykjanesbær keypti árið 2002 af Gunnari Marel Eggertssyni, sem smíðaði skipið. Menntamálaráðuneytið styrkti á sínum tíma uppbyggingu safnsins um 120 milljónir króna auk þess sem ýmis fyrirtæki lögðu því til fé. Rekstur safnsins hefur verið í tveimur félögum: Íslendingi, sem sér um rekstur og á skipið sjálft, og Útlendingi, sem var stofnað utan um byggingu Víkingaheima. Íslendingur, sem á Útlending að öllu leyti, hefur verið í eigu Reykjanesbæjar (51%), Gunnars Marels (20%) og Olís (6%) auk þess sem félagið á 23% hlut í sjálfu sér. Rekstur Víkingaheima hefur ekki gengið sem skyldi og samanlagt tap félaganna tveggja á árinu 2010 var tæpar 50 milljónir króna. Samanlagðar skuldir þeirra voru 619 milljónir króna og eigið fé samstæðunnar var neikvætt um 113,5 milljónir króna. Í ársreikningum félaganna kemur fram að þau hafi unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á árinu 2011. Þar segir að „allt bendi til þess að skuldir Útlendings ehf. í árslok 2011 verði lækkaðar um 60-70% og að Reykjanesbær muni skuldajafna kröfu sinni á félögin og breyta í hlutafé í Íslendingi ehf., að fjárhæð rúmar 100 milljónir króna og eignast þar með yfir 99% hlut í félaginu. Áætlað er að eignir samstæðu Íslendings ehf. muni í árslok 2012 nema 438 milljónum króna og að skuldir samstæðunnar eftir leiðréttingu og endurskipulagningu verði á sama tíma um 185 milljónir króna“. Við þessa breytingu fer bókfærð eign Reykjanesbæjar í félögunum sem standa að Víkingaheimum úr því að vera neikvæð í það að vera jákvæð um rúmlega 250 milljónir króna. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira