Vinsælasta rúðan í bænum til að brjóta Boði Logason skrifar 20. mars 2012 10:20 „
Það er ekki skemmtilegt að lenda í svona, þetta er leiðindatilfinning," segir Ólafur G. Jósefsson, eigandi GÞ Skartgripir og úr í Bankastrætinu í miðbæ Reykjavíkur. Öflug sprengja var límd utan á rúðu skartgripaverslunarinnar á sjötta tímanum í morgun en hár hvellur heyrðist um nágrennið. Sprengjubrot fundust í allt að 30 metra fjarlægð. „Ég fékk bara símhringingu frá lögreglunni í morgun," segir Ólafur í samtali við fréttastofu nú í morgun. „Þeir límdu sprengju utan á rúðuna og svo var bara kveikt á þræði og hún sprakk hérna út um allt. Það er allt í glerbrotum," segir hann. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem reynt hefur verið að brjóta rúðuna hjá honum, en hann hefur átt verslunina síðan árið 1978 en hún var stofnuð árið 1925. „Það hefur gerst mjög oft. Ég hugsa að þetta sé ein vinsælasta rúðan í bænum til að brjóta. Hún hefur lent í ýmsu í gegnum tíðina. Ég setti upp öryggisgler fyrir nokkrum árum þannig ég er með góða vörslu." Rúðan brotnaði ekki alveg í gegn og fóru því sprengjumennirnir á brott eftir að þeir áttuðu sig á því að rúðan brotnaði ekki. Engu var stolið. Ólafur segist vera með öryggismyndavélar og rannsakar nú lögreglan myndskeiðin úr þeim. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sjást tveir menn á vettvangi. Annar er dökk klæddur en hinn í rauðri hettuúlpu með hvítt í ermunum. „Sprengjan var svolítið öflug, það var mikill þrýstingur maður sér það á loftinu. Lögreglan rannsakar núna málið og við vonum að þeir finni þá sem voru hér að verki," segir hann að lokum.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Allar stöðvar ræstar út vegna elds á Holtavegi Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira