Nýtingarsamningar til 20 ára í nýrri heildarlöggjöf um fiskveiðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. mars 2012 18:28
Gerðir verða nýtingarsamningar til 20 ára við kvótaeigendur samkvæmt nýrri heildarlöggjöf um stjórn fiskveiða en undirbúningur þess er á lokametrunum og er stefnt að því að kynna frumvarp á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekkert samráð hafi verið haft við útvegsmenn. Fjórir sérfræðingahópar ráðuneytisins hafa komið að gerð frumvarpsins í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en um er að ræða nýja heildarlöggjöf um stjórn fiskveiða. Stærra kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem Jón Bjarnason þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði fram á síðasta ári mætti harðri andstöðu á nær öllum sviðum atvinnulífsins og andstöðu í öllum þingflokkum. Þá kynnti Jón í nóvember sl. drög að frumvarpi sem var þó aldrei lagt fram. Eftir að Steingrímur J. Sigfússon tók við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um áramótin hefur verið gerð gangskör í smíði nýs frumvarps og er þessi vinna nú á lokametrunum. Samkvæmt heimildum fréttastofu gerir frumvarpið m.a ráð fyrir að gerðir verði nýtingarsamningar til 20 ára við kvótaeigendur gegn árlegu nýtingargjaldi sem þeir munu hafa rétt að endurnýja áður en samningstími er úti. Í því felst grundvallarbreyting á réttarstöðu útgerðarmanna því í raun er sett tímamark á aflaheimildir. Eðli þeirra breytist í tímabundin afnotaréttindi samkvæmt samningi gegn gjaldi. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að ráðherra hafi tvívegis fundað með útvegsmönnum á almennum nótum en að öðru leyti hafi engar upplýsingar verið veittar um efni frumvarpsins. Hann segir æskilegt að hafa samráð við atvinnugreinina ef sátt eigi að nást um grundvallarbreytingar á henni.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Sjá meira