Gylfi: Full ástæða til þess að staldra við bónusa Magnús Halldórsson skrifar 14. maí 2012 12:40 Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði.
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, segir að fara þurfi varlega þegar kemur að kaupaukakerfum í nýju bönkunum og að full ástæða sé til þess að staldra við þegar þessar hugmyndir eru ræddar í tengslum við hina endurreistu banka. „Það er rétt að staldra við þegar kemur að kaupaukakerfum í bönkunum, ekki síst þegar skattgreiðendur eru stærstu eigendur. Bónusgreiðslur og kaupaukakerfi í bönkunum fyrir hrun þeirra var ein ástæða þess hvernig fór, og ýtti undir fífldjarfa áhættu. En þrátt fyrir það, er ekki þar með sagt að öll kaupaukakerfi séu óréttlætanleg. Útfærslan er aðalatriði í þessu og þar þarf að vanda til verka," segir Gylfi. Í samkomulagi milli nýja og gamla Landsbankans er ráð fyrir því gert að starfsmenn Landsbankans geti eignast tveggja prósenta hlut í bankanum, ef vel gengur að endurheimta eignir í tengslum við skilyrt 92 milljarða skuldabréf milli nýja og gamla bankans. Miðað við innra virði Landsbankans, þ.e. eigið fé, er virði tveggja prósenta hlutar í dag ríflega fjórir milljarðar króna. Stærsti eigandi hins endurreista Landsbanka er íslenska ríkið með 81 prósent hlut en kröfuhafar gamla bankans eiga um 19 prósent hlut. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu og Stöð 2 undanfarnar vikur þá liggur endanleg útfærsla á kaupaukakerfi Landsbankans ekki fyrir. Nýsamþykktar reglur Fjármálaeftirlitsins gera þó ráð fyrir að starfsmenn í innri endurskoðun, áhættustýringu og regluvörslu geti ekki fengið kaupauka, auk þess sem kaupaauki má ekki vera hærri árlega en sem nemur fjórðungi af heildarlaunum á ári án kaupauka.
Tengdar fréttir Bónusar eins og fyrir hrun ekki á dagskrá Það kemur ekki til greina að hleypa kaupaukakerfinu í bönkunum af stað aftur í þeirri mynd sem það var fyrir hrun segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir áform um kaupaukakerfi í Landsbankanum til komin vegna óska kröfuhafa. 14. maí 2012 08:00 Mest lesið Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Sjá meira
Bónusar eins og fyrir hrun ekki á dagskrá Það kemur ekki til greina að hleypa kaupaukakerfinu í bönkunum af stað aftur í þeirri mynd sem það var fyrir hrun segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir áform um kaupaukakerfi í Landsbankanum til komin vegna óska kröfuhafa. 14. maí 2012 08:00