Lífeyrissjóðirnir lánuðu Glitni 11 milljarða 5. febrúar 2012 18:37
Þrettán lífeyrissjóðir veittu Glitni nærri ellefu milljarða króna lán í mars 2008 þegar viðvörunarmerki voru farin að blikka á íslenskum fjármálamarkaði. Engar tryggingar voru fyrir láninu og enginn gjalddagi. Milljarðarnir töpuðust nokkrum mánuðum síðar þegar bankinn féll. Fréttastofan ræddi við sérfræðing með áratuga reynslu úr íslensku fjármálalífi - hann kannaðist ekki við að hafa séð ákvæði sem þetta áður - þ.e. að útgefanda skuldabréfs, Glitni, sé samkvæmt samningi heimilt að færa niður höfuðstól til að mæta hugsanlegu rekstrartapi bankans. Lífeyrissjóðirnir þrettán hafa höfðað mál á hendur slitastjórn Glitnis og telja sig hafa meðal annars verið beitta blekkingum af stjórnendum bankans. Þessi tiltekna fjárfesting var ítarlega rædd í fjárfestingaráði LSR áður en ákvörðun var tekin. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, baðst undan viðtali í dag en svaraði fúslega spurningum fréttastofu. Hann segir tryggingu sjóðsins hafa falist í kröfu á bankann við gjaldþrot þar sem svona skuldabréf gangi framar til dæmis hlutabréfum. Sum sé að lán sem þetta hafi verið áhættuminni fjárfesting en að kaupa hlut í bankanum. Haukur segir sjóðinn hafa verið blekktann, bankinn hafi reitt fram rangar upplýsingar um eiginfjárstöðu, lausafjárstöðu og stærstu áhættuskuldbindingar Glitnis þegar LSR tók ákvörðun um þessa milljarða fjárfestingu sem varð að engu áður en búið var að greiða eina einustu krónu í vexti, hvað þá meir.
Mest lesið Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Loðnumælingar töluvert undir væntingum Viðskipti innlent Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki