Býst við niðurstöðu með haustinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. júlí 2012 12:58 Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson segir að vænta megi niðurstöðu með haustinu. „
Málið er í eðlilegum farvegi og við getum búist við niðurstöðu með haustinu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um fréttir þess efnis að samkomulag um leigu kínverska fjárfestisins Huangs Nubo um leigu á landi að Grímsstöðum á Fjöllum sé í höfn. Nubo sagði í samtali við Bloomberg að samkomulagið yrði undirritað fyrir október. Í viðtalinu segir Nubo að leiguverðið verði tæplega 7,8 milljónir dollara eða um einn milljarður króna. Það er um milljón dollurum minna en kaupverðið átti að vera. Fram kemur í viðtalinu að Nubo hyggst fjárfesta í heild fyrir tæplega 200 milljónir dollara eða tæplega 25 milljarða króna á Grímsstöðum á Fjöllum en þar ætlar hann m.a. að byggja hótel, 100 lúxusíbúðir eða villur fyrir sterkefnaða Kínverja og golfvöll. Einnig ætlar hann að koma upp skemmti- eða fjallagarði eins og hann orðar það á hinu 300 ferkílómetra landi sem fylgir með í leigunni. Fram kemur í viðtalinu að leigusamningurinn gildi til 40 ára með möguleika á framlengingu í 40 ár í viðbót.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira