Þingmenn krefjast fundar með ÍLS Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 29. júlí 2012 18:55
Hópur þingmanna af Suðurlandi hefur óskað eftir fundi með stjórnendum Íbúðalánasjóðs til að krefjast þess að sjóðurinn leigi út tómar íbúðir á svæðinu. Stjórnarþingmaður segir það lögbundið hlutverk sjóðsins að mæta aukinni eftirspurn. Íbúðalánasjóður á fimmtíu og þrjár íbúðir á Árborgarsvæðinu sem standa tómar. Sjóðurinn hefur ekki viljað leigja þær, þrátt fyrir mikla eftirspurn. Að sögn forstjóra sjóðsins eru íbúðirnar ekki í leiguhæfu ástandi og jafnframt væri það óheppilegt ef sjóðurinn færi í samkeppni við leigufélög á svæðinu sem sum eru viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður, hefur nú, ásamt hópi þingmanna af svæðinu, óskað eftir fundi til að ræða málið við stjórnendur sjóðsins. "Ég geri alvarlegar athugasemdir, og hef gert síðustu vikur, við þessa ákvörðun Íbúðalánasjóðs. Í fyrsta lagi held ég að þessi harðlína sjóðsins um að setja ekki fleiri íbúðir á markað, með þessum vinnureglum sem sjóðurinn setur sér sjálfur, búi bókstaflega til aukinn skort á leiguhúsnæði." Hann segir það hlutverk sjóðsins að leigja út íbúðir. "Í 9. gr. laga um Íbúðalánasjóð er kveðið á um það að það sé bókstaflega hlutverk sjóðsins samkvæmt lögum að leigja út íbúðir ef svo ber undir. Það er svo sérstaklega nefnt í einum lið 9. gr. að sjóðurinn eigi að taka tillit til aðstæðna á íbúðamarkaði. Ég tel það því lögbundið hlutverk sjóðsins, vegna aðstæðna og eftirspurnar, að setja mun fleiri íbúðir á leigumarkað í stað þess að sitja á þeim," segir Björgvin. Björgvin segir það litlu skipta hvort íbúðirnar séu í óleiguhæfu ástandi, sjóðurinn þurfi hvort eð er að koma þeim í söluhæft ástand. "Sjóðurinn situr á tugum íbúða. Þó það þurfi að setja eitthvað í að koma þeim í stand til að leigja þær út er það einfaldlega aukin fjárfesting sem sjóðurinn þarf hvort eð er að ráðast í," segir Björgvin. "Það er fjárfesting. Það eru endurbætur á húsnæðinu sem sjóðurinn þarf hvort sem er að fara í til að koma þeim út síðar."
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Sjá meira