Svona verður veðrið um páskana 3. apríl 2012 12:53
Vænlegasta veðrið fyrir skíðaiðkun verður á Austurlandi um páskana samkvæmt veðurspá. Gert er ráð fyrir hálku á vegum næsta mánudag og því ættu ferðalangar að fara varlega í umferðinni. Vestanátt verður ríkjandi og milt í veðri um allt land næstu daga. Hitinn verður yfir frostmarki á láglendi að minnsta kosti fram á páskadag en þá er gert ráð fyrir kólnandi veðri að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. „Það verður nú þungbúið og einhver súldarvottur og líklega verður nú kannski mesta rigningin á aðfaranótt páskadags sýnist mér. Það er þá aðallega bundið við landið vestanvert og eitthvað með norðurströndinni en Suð-Austurland ættu að sleppa að mestu leyti við úrkomu," segir Óli Þór. Og skíðaáhugamenn ættu nú að verða glaðir því besta færið verður væntanlega á Austurlandi. „Þannig að ég hugsa nú að í Oddskarði verði nú bjart og fallegt. Það getur verið að það verði vindur inn á milli þarna, þannig að það gæti truflað þá eitthvað." Færðin verður ekki jafn góð í Bláfjöllum og Skálafelli en þar verður lágskýjað, þungbúið og frostlaust. „Ísafjarðarsvæðið gæti nú á köflum sloppið en það verður suðvestan-átt sem er ekkert sérstaklega hagstæð. Sauðárkrókur, Akureyri, Siglufjörður og Dalvík eru öll á sama svæðinu. Þar ætti að geta orðið á köflum ágætisveður." Óli Þór gerir ráð fyrir að greiðfært verði á láglendi en bendir þó á að hálkublettir geti myndast á fjallvegum og þoka truflað ökumenn. „Þeir sem ætla að ferðast til baka á annan í páskum, þá má benda á að þá verði orðið mun stærri svæði þar sem búast má við hálku ef spár ganga eftir. Það er gert ráð fyrir að það kólni það mikið að það fari jafnvel niður fyrir frostmark og þá getur fljótt myndast hálka sérstaklega á þessum vegum sem bleyta er fyrir."
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Sjá meira