Hraunar yfir tillögu meirihlutans: 4 Smáralindir við Landspítalann? Boði Logason skrifar 3. apríl 2012 14:39 Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýtt deiliskipulag Landspítalans við Hringbraut sem meirihlutinn í borginni hefur lagt fram. Mynd/Anton Brink
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýtt deiliskipulag Landspítalans við Hringbraut sem meirihlutinn í borginni hefur lagt fram. Hann segir tillöguna mjög vonda; bílastæðamál séu mjög illa leyst og ásýndin að gamla spítalanum hverfi á bak við risabyggingar. Í pistli á heimasíðu sinni segir Gísli að ef deiliskipulagið verði samþykkt verði þar byggingar sem séu um 290 þúsund fermetrar að stærð - það sé eins og fjórar Smáralindir. Í pistlinum segir hann að tillagan sé ónæm fyrir umhverfi sínu og gangi gegn markmiðum borgarinnar bæði í samgöngu- og skipulagsmálum. Hún sé einfaldlega óásættanleg. „Furðulegast í þessu öllu er þó byggingarmagnið sjálft. Samkvæmt þessu skipulagi ætla Íslendingar að fara að reisa spítala sem verður samtals um 290 þúsund fermetrar. Núverandi Landspítali er 60-70 þúsund fermetrar og Borgarspítalinn 30 þúsund fermetrar (samtals 90-100 þúsund fermetrar). Ástæða nýju byggingarinnar er sameining þessara tveggja spítala, og í því ljósi er mjög sérstakt að sameinaður muni spítalinn verða þrisvar sinnum stærri en þeir tveir hlutar sem eru að sameinast," skrifar Gísli Marteinn. „Sænska Arkitektastofan White lagði til meira byggingamagn en Ementor, og sagði að 135 þúsund fermetrar væri hæfilegt heildarbyggingamagn. Lengst gekk þó norska arkitektastofan Momentum sem taldi að 130 þúsund fermetrar gætu dugað okkur, en 180 þúsund fermetrar væri líka möguleiki ef Íslendingar væru verulega stórhuga. Niðurstaða Íslendinganna: 290 þúsund fermetrar. Til samanburðar má geta þess að Nýi spítalinn í Þrándheimi er um 200 þúsund fermetrar, en hann þjónar um 650 þúsund manns, eða öllum norður og suður Þrændarlögum. Nýja Akerhus háskólasjúkrahúsið er 136 þúsund fermetrar og þjónar fleirum en Landspítalinn. Nýja Austfoldar sjúkrahúsið í Noregi er 112 þúsund fermetrar." Hægt er að lesa pistil Gísla Marteins hér.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira