Tinna að spila frábærlega og búin að ná Önnu Sólveigu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2012 15:10 Tinna Jóhannsdóttir. Mynd/Seth
Tinna Jóhannsdóttir er komin upp að hlið Önnu Sólveigu Snorradóttur þegar þriðji hringurinn er hálfnaður í meistaraflokki kvenna á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Helli. Það má fylgjast með í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi. Tinna og Anna Sólveig eru báðar í Keili. Tinna hefur leikið fyrstu tíu holur dagsins á tveimur höggum undir pari en hún fékk fugl á bæði níundu og tíundu holu. Tinna er samtals á sjö höggum yfir pari eins og Anna Sólveig sem var líka í efsta sæti eftir annan daginn ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur. Valdís er aðeins einu höggi á eftir Tinnu og Önnu. Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er sjö höggum á eftir efstu konum og Eygló Myrra Óskarsdóttir, sem varð þriðja eftir annan hringinn, er komin niður í 9. sæti enda búin að tapa sjö höggum á fyrstu níu holunum í dag.Staðan hjá konunum: 1. Tinna Jóhannsdóttir, GK +7 1. Anna Sólveig Snorradóttir, GK +7 3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +8 4. Sunna Víðisdóttir, GR +11 5. Guðrún Pétursdóttir, GR +12 6. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR +13 7. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +14 7. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +14 9. Heiða Guðnadóttir, GKj +15 9. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO +15
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira