Ekki forsendur til að greiða Róberti árangursþóknun Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. febrúar 2012 11:27 Róbert Wessman í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Tvö dótturfélög Novators telja að ekki séu forsendur til að efna fjárfestingarsamning við Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóra Actavis, þar sem áætlanir um rekstur Actavis hafi ekki staðist. Ekki er byggt á umboðsleysi Björgólfs Thors Björgólfssonar til að skuldbinda félögin, eins og áður hefur komið fram. Síðari hluta aðalmeðferðar í máli Róberts gegn félögunum Novator Pharma Holding og Novator Pharma S.a.r.l lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, en Róbert höfðaði mál gegn félögunum tveimur og krafðist 30 milljóna evra, jafnvirði 4,8 milljarða króna, vegna ógreiddrar árangurstengdrar þóknunar (e. success fee) sem hann taldi sig eiga inni hjá félögunum. Málið snýst um fjárfestingarsamning sem Róbert gerði við fyrirtækin tvö árið 2007 meðan hann var enn forstjóri Actavis, en hann lét af starfi forstjóra fyrirtækisins hinn 4. ágúst 2008. Ákvæði í fjárfestingarsamningi um áðurnefnda árangursþóknun var byggt á tvenns konar skilyrðum, annars vegar ef Actavis yrði selt og hins vegar ef ekki tækist að ljúka sölu á fyrirtækinu fyrir lok árs 2009. Fram kom í fréttum okkar í gær að lögmaður félaganna tveggja, Novator Pharma Holdings og Novator Pharma S.a.r.l, hafi haldið því fram að félögin tvö væru ekki skuldbundin til að efna samkomulag við Róbert þar sem eigandi félaganna, Björgólfur Thor Björgólfsson, hafi ekki haft umboð til að gera samninga í þeirra nafni þar sem hann hafi skort umboð. Var þetta byggt á upplýsingum sem komu fram við aðalmeðferð málsins, en á rætur að rekja til misskilnings. Hið rétta er að aðallega er byggt á því að forsendur fyrir árangurstengdu greiðslunni til Róberts Wessman séu brostnar og því sé ekki hægt að efna ákvæði fjárfestingarsamningsins frá 2007. Björgólfur Thor hefur aldrei haldið því fram að hann hafi ekki haft umboð til að gera samninga í nafni dótturfélaga Novators og það leiðréttist því hér með.Væntingar um rekstur Actavis stóðust ekki Í starfslokasamningi Róberts og Actavis frá 2008 var sérstaklega vísað til fjárfestingarsamnings milli Róberts og Novator Pharma Holdings og Novator Pharma S.a.r.l, en þegar samningur um starfslok var gerður var Björgólfur Thor stjórnarformaður Actavis. Jan Rottiers, lögfræðingur hjá Novator sem situr í stjórn Novator Pharma Holdings og Novator Pharma S.a.r.l, gaf skýrslu fyrir dómi í gær. Fram kom í máli hans að Björgólfur Thor hafi ekki haft umboð til að skuldbinda félögin tvö þegar vísað var í fjárfestingarsamninginn í starfslokasamningi sem gerður var við Róbert Wessman þegar hann hætti sem forstjóri Actavis. Þ.e að Björgólfur Thor hafi í raun ekki haft heimild til að setja sérstakt ákvæði í samning sem gerður var milli Actavis og Róberts sem skuldbatt Novator Pharma S.a.r.l og Novator Pharma Holdings. Hins vegar er litið svo á að samningur Róberts og Novator-félaganna tveggja frá 2007 hafi verið fullgildur þegar hann var gerður, en deilt er nú um hvort hann standi enn. Reimar Pétursson, hrl. sem er lögmaður Novator-félaganna tveggja, hélt því fram fyrir dómi að forsendur fyrir samningnum væru brostnar og því væri félögunum ekki skylt að efna ákvæði hans. Við aðalmeðferð málsins kom fram að Novator hefði tekið Actavis yfir árið 2007 með 5,3 milljarða evra yfirtöku sem að langstærstu leyti var fjármögnuð af Deutsche Bank.Actavis braut lánasamning við Deutsche Bank Við aðalmeðerð málsins í gær kom m.a fram að ljóst hafi verið í upphafi árs 2008 að væntingar um rekstur Actavis stæðust ekki, en Sigurður Óli Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Actavis, gaf skýrslu símleiðis og sagði að Actavis hefði verið nálægt því að brjóta ákvæði í lánasamningum við Deutsche Bank alla ársfjórðunga ársins 2008. „Áætlanir höfðu töluvert lækkað og Deutsche Bank hafði byrjað að skipta sér mun meira af rekstrinum," sagði Sigurður Óli. Síðar kom fram að í október 2008 hafi ákvæði í lánasamningi (e. covenant) við Deutsche Bank verið brotið með þeim hætti að leggja þurfti félaginu til 150 milljónir evra. Málið var dómtekið að lokinni aðalmeðferð í morgun og ætti niðurstaða að liggja fyrir innan fjögurra vikna. Óvíst er hvort nokkrir fjármunir eru inni í Novator Pharma S.a.r.l og Novator Pharma Holdings til að efna kröfu Róberts á hendur félaginu fari svo að félögin verði dæmd til að greiða hana. Novator-félögin tvö eru ekki lengur skráð yfir þeim eignarhaldsfélögum sem eiga Actavis í dag, en fyrirtækið fór í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu áður en það fór undir óbein yfirráð Deutsche Bank á árinu 2010. Haustið 2010 var í raun tilkynnt um óbeina yfirtöku Deutsche Bank á Actavis með tilkynningu um samruna til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira