Sigurrós á Airwaves - stórtónleikar í nýju Laugardalshöll Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 8. maí 2012 11:46
Hljómsveitin Sigur Rós verður aðalnúmerið á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Ellefu ár eru síðan sveitin kom síðast fram á Airwaves og fjögur ár eru liðin frá síðustu tónleikum hennar hér á landi. Sigur Rós lokar hátíðinni í ár með veglegum tónleikum sunnudagskvöldið fjórða nóvember í nýju Laugardalshöllinni en hátíðin hefst 31. október. Kári Sturluson umboðsmaður Sigur Rósar segir í samtali við fréttastofu að með því að hafa tónleikana þar sé hægt að koma öllum gestum hátíðarinnar fyrir og fleirum til. Tónleikarnir verða lokahnykkurinn á tónleikaferð þeirra um Bandaríkin, Asíu og Evrópu og hingað mun sveitin mæta með allt sitt hafurtask. „Eiginlega í fyrsta skipti í langan tíma sem við náum að koma öllu dótinu okkar fyrir á tónleikum á Íslandi." Síðustu tónleikar sveitarinnar hér á landi voru í nóvember 2008 en Kári segir að þá hafi þeir ekki náð að vera með allt með sér. „En við náum því núna." Sigur Rós spilaði síðast á Airwaves árið 2001, í Listasafni Reykjavíkur. Í tilkynningu frá Iceland Airwaves segir að þeir sem keypt hafi miða á hátíðina standi til boða að kaupa miða á tónleika Sigur Rósar frá sextánda maí næstkomandi. Miðaverð fyrir hátíðargesti er 3900 krónur. Síðar mun almenningi standa til boða miðar í höllina og munu þeir kosta 5900 krónur.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira