Aron sagði það að "taka snúning“ vera að "gera eitthvað“ Magnús Halldórsson skrifar 22. október 2012 11:53
Aron Karlsson, sem ákærður er fyrir fjársvik í tengslum við viðskipti með Skúlagötu 51 þar sem kínverska sendiráðið er til húsa, bar við minnisleysi um vegamikil atriði við aðalmeðferð málsins í morgun. Hann sagði Gísla Gíslason lögmann hafa séð um öll samskipti við banka fyrir sína hönd. Vitnað var til samskipta á Skype í dómsal í morgun þar sem Aron sagði m.a. við bróður sinn í samtali, að hann ætlaði sér að „taka snúning" á bönkunum. Embætti sérstaks saksóknara ákærði Aron Karlsson, sem er sonur Karls Steingrímssonar sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, 16. apríl á þessu ári, og fer aðalmeðferð í málinu fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ákæran á hendur Aroni byggir á því að hann hafi með svikum komið sér og félagi sínu undan skuldum, með því að skjóta húseign að Skúlagötu 51 úr félaginu Vindasúlum ehf. inn í eignarhaldsfélagið 2007, skömmu áður en húsið var selt til kínverska sendiráðsins fyrir 875 milljónir króna, 17. desember 2009. Á húsinu hvíldu tryggingabréf í eigu banka, upp á um einn milljarð króna samtals, og töldu bankarnir að með fyrrnefndri eignafærslu hefði Aron haft af þeim um 300 milljónir, og kærðu málið í kjölfarið til sérstaks saksóknara Eftir um þriggja ára rannsókn var gefin út ákæra. Aron neitar sök, og bar við minnisleysi um vegamikil atriði, þar langt var um liðið frá atburðum, þegar Finnur Vilhjálmsson saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara spurði hann út í málsatvik en Aron lauk skýrslugjöf sinni á ellefta tímanum í morgun. Hann sagði Gísla Gíslason lögmann hafa átt í samskiptum við banka fyrir sína hönd, og að hann hefði komið að málum þegar fasteignin var færð milli félaga, skömmu áður en kínverska sendiráðið keypti húsið. Í morgun var meðal annars vitnað til gagna sem haldlögð voru við húsleit sem embætti sérstaks saksóknara framkvæmdi 19. janúar 2010. Meðal annars voru tölvugögn þar sem samskipti Arons við bróður hans á samskiptaforritinu Skype, 22. júní 2009, um hálfu ári áður en húsið var selt. Þar kemur fram að hann sé með „nokkur plott" í gangi, eins og orðrétt sagði fyrir dómi, og ætli sér að „taka snúning" á bönkunum. Aðspurður fyrir dómi í morgun sagði Aron að hann taki stundum svona til orða, það er að taka snúning á einhverjum, sé í reynd að „gera eitthvað". Aron sagðist alltaf kappkosta að fara að lögum, og hafi talið sig vera að gera það að öllu leyti, í fyrrnefndum viðskiptum. Samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur lýkur aðalmeðferð í málinu á morgun.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira