Breytingar á ráðuneytum samþykktar í ríkisstjórn - taka gildi 1.september 22. mars 2012 15:20 Mynd/GVA
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu ráðherranefndar um stjórnkerfisumbætur varðandi breytingar á heitum og fjölda ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu en tillagan er nú til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. „Í samræmi við nýsamþykkt lög um Stjórnarráð Íslands verður lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi sem að þessu lýtur. Þar er lagt til í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti," segir í tilkynningunni en í með þessari breytingu fækkar ráðuneytum út tíu í átta. „Er þar með stigið lokaskrefið í sameiningarferli ráðuneytanna í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna. Í upphafi kjörtímabilsins voru ráðuneytin 12 talsins. Stefnt er að því að ljúka umfangsmikilli sameiningu og verkefnatilfærslum milli ráðuneyta á næstu mánuðum þannig að breytingarnar taki gildi 1. september nk."Með sameiningunni verða eftirfarandi breytingar: Auk verkefna sem áður heyrðu undir sjávarútvegs- landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytið er gert ráð fyrir að til nýs atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis færist verkefni sem tengjast fjármálamarkaði, almennum leikreglum atvinnulífsins og viðskiptamálum sem nú heyra undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Með stofnun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis er stefnt að auknu jafnræði allra atvinnugreina og skilvirkri og einfaldri stjórnsýslu í þeirra þágu og almennings. Í ljósi greiningarvinnu sem fram hefur farið þykir skynsamlegt og faglega rétt að verkefni sem tengjast hagstjórn séu færð frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti til fjármálaráðuneytis og heiti þess breytt í fjármála- og efnahagsráðuneyti. Með þessari breytingu verða því öll meginverkefni á sviði hagstjórnar, ríkisfjármála, peningastefnu- og gjaldeyrismála á einum stað innan Stjórnarráðs Íslands. Sambærilegt fyrirkomulag er m.a. í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Írlandi og á Bretlandi. Loks er með stofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytis á grunni umhverfisráðuneytis er lögð áhersla á aukið hlutverk þess varðandi sjálfbæra nýtingu auðlinda í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun hlutast til um mótun og lögfestingu meginreglna umhverfisréttarins og skilgreiningu þeirra viðmiða sem gilda eiga um sjálfbæra nýtingu. „Með þessum breytingum verður stigið stórt skref og jafnræði aukið í þjónustu Stjórnarráðsins við allar atvinnugreinar, einnig verslun og þjónustu, svo sem ferðaþjónustu, og hugverkagreinar," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Þá verður staða efnahagsmála innan Stjórnarráðsins styrkt enn frekar og til verða þrjú öflug ráðuneyti sem endurspegla breytingar sem orðið hafa og munu verða á samfélagi okkar og alþjóðaumhverfi."
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira