Skuldir heimila sem hlutfall af landsframleiðslu mun lægri en í Danmörku Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. mars 2012 18:30
Skuldir heimilanna sem hlutfall af landsframleiðslu eru lægri á Íslandi en á Írlandi, í Hollandi og Danmörku. Samanburður við Danmörku er merkilegur fyrir þær sakir að mun fleiri búa í eigin húsnæði hér á landi en þar. Skuldir íslenskra heimila urðu mestar um 1.940 milljarðar króna eða um 129 prósent af landsframleiðslu á þriðja ársfjórðungi 2009. Síðan hafa skuldirnar lækkað nokkuð stöðugt og námu í lok síðasta árs um 107 prósent af landsframleiðslu, samkvæmt Fjármálastöðugleika, riti Seðlabankans. Upp úr síðustu aldamótum voru skuldir heimila hérlendis sem hlutfall af landsframleiðslu á svipuðu róli og í Danmörku og Hollandi, en nú 10 árum síðar stefnir í að skuldirnar verði töluvert lægri hér á landi en í þessum löndum og þá hafa skuldir heimila á Írlandi aukist umtalsvert á tímabilinu og eru nú meiri en íslenskra heimila. Í sjónvarpsútgáfu fréttinnar og í grafík hér til hliðar gefur að líta töflu yfir skuldsetningu heimila í nokkrum löndum sem hlutfall af landsframleiðslu. Um er að ræða tölfræði fyrir árið 2010 og eins og sést eru skuldir heimila í Danmörku rúmlega 140 prósent af landsframleiðslu, í Hollandi er þetta hlutfall um 125 prósent og svipað á Írlandi. Í lok árs 2010 voru skuldir íslenskra heimila hins vegar komnar undir 120 prósentin og á súlunni lengst til hægri sem gildir fyrir árið 2011 sést að þær hafa enn lækkað og eru komnar undir 110 prósent og voru raunar komnar í 107 prósent í lok síðasta árs. Þessar upplýsingar er að finna á vef Seðlabankans. Sérstaka athygli vekur að skuldir íslenskra heimila séu svona mikið lægri á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu en í Danmörku, því hlutfall þeirra sem eiga eigið húsnæði er mun hærra hér á landi en þar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira