Olíudómi verður áfrýjað Magnús Halldórsson skrifar 22. mars 2012 20:00
Íslenska ríkið þarf að endurgreiða olíufélögunum sektargreiðslur vegna verðsamráðs upp á einn og hálfan milljarð króna samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur. Félögin nutu að mati dómara ekki andmælaréttar í samræmi við lög. Mál er tengjast samráði olíufélaganna á árunum 1993 til og með meirihluta árs 2001, hafa verið til umfjöllunar í réttarkerfinu allt frá því samkeppnisyfirvöld gripu til aðgerða gegn olíufélögunum með húsleitum, hinn 18. desember 2001. Hinn 28. október 2004 birtu samkeppnisyfirvöld síðan ákvörðun sína, eftir ítarlega rannsókn, og komust m.a. því "að olíufélögin hafi frá gildistöku samkeppnislaga haft með sér yfirgripsmikið og óslitið samráð um verð, markaðsskiptingu og gerð tilboða." 28. janúar 2005 staðfestir áfrýjunarnefnd samkeppnismála síðan sekt á hendur olíufélögunum upp á 1,5 milljarð króna. Frá þeim tíma hefur Hæstiréttur í nokkur skipti staðfest að samráð olíufélaganna hafi sannarlega verið fyrir hendi og valdið, sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum, fjárhagslegu tjóni. Nú ríflega sjö árum síðar, eftir áralanga málsmeðferð í dómskerfinu, felldi Héraðsdómur Reykjavíkur dóm sinn og gerði samkeppnisyfirvöldum og ríkinu að endurgreiða olíufélögunum sektirnar. Eina ástæðan fyrir þessari niðurstöðu, samkvæmt dómi héraðsdóms, er að olíufélögin hafi ekki notið andmælaréttar við rannsókn málsins, þar sem málið hafi verið til rannsóknar hjá lögreglu og samkeppnisyfirvöldum á sama tíma. Orðrétt segir í dóminum: Þar sem um íþyngjandi ákvörðun var að ræða fyrir stefnendur, og ákvörðun sem varðaði verulega fjárhagslega hagsmuni, áttu stefnendur ótvíræðan rétt á að geta gætt hagsmuna sinna án þess að eiga það á hættu að upplýsingar þær er þeir veittu myndu rata á borð lögregluyfirvalda og vera notaðar gegn þeim þar. Við þessar aðstæður var andmælaréttur stefnenda lítils virði. Hér er því um að ræða verulegan annmarka á málsmeðferðinni sem leiðir til þess að felldur er úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið ætla að áfrýja dóminum til Hæstaréttar.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira