Agnes ekki hlynnt frekari aðskilnaði 26. apríl 2012 12:00 Sr. Agnes verður næsti biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands, segist ekki vera hlynnt frekari aðskilnaði ríkis og kirkju. Á endanum sé það hins vegar þjóðarinnar að taka ákvörðun í málinu. Samband kirkju og ríkis hefur verið til umræðu undanfarin ár en í tillögu stjórnarlagráðs að breytingum á stjórnarskrá er meðal annars lagt til að ákvæði um þjóðkirkju verði tekið út. Agnes segir að mikilvægt að þjóðin taki endanlega ákvörðun í málinu. Sjálf sé hún hins vega ekki hlynnt frekari aðskilnaði ríkis og kirkju. Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands, segist ekki vera hlynnt frekari aðskilnaði ríkis og kirkju. Á endanum sé það hins vegar þjóðarinnar að taka ákvörðun í málinu. „Þetta með orðið þjóðkirkja, þetta eru tvö orð sem eru mynduð í þjóðkirkjunni. Þetta er samfylgd þjóðar og kirkju, það er aðallatriðið," segir Agnes. „Auðvitað þarf þjóðin að segja til um það hvort hún vilji þessa samfylgd áfram eða ekki, hvernig hún vill hafa hana, það er ekki bara kirkjan sem á að segja til um það heldur þjóðin líka." Agnes segir að þannig sé um að ræða samspil milli kirkju og þjóðar „Og þeir sem tilheyra kirkjunni eru líka hluti af þjóðinni, eru meirihluti þjóðarinnar, við skulum ekki gleyma því." Aðspurð hvort hún sé hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju svarar Agnes: „Sá aðskilnaður sem hefur farið fram hingað til, mér sjálfri finnst hann vera í góðu lagi eins og hann er núna," segir Agnes og bætir við að kirkjan sé sjálfstæð stofnun sem beri réttindi og skyldur að lögum og ráði sínum málum sjálf „og setji sínar reglur og allt slíkt." „En varðandi það hvort frekari aðskilnaður eigi að vera ég sé það ekki fyrir mér."
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira