Frændinn loks mættur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. júní 2012 20:00
Bíó. Prometheus. Leikstjórn: Ridley Scott. Leikarar: Noomi Rapace, Michael Fassbender, Charlize Theron, Guy Pearce, Idris Elba, Logan Marshall-Green. Árið 1979 sló breski leikstjórinn Ridley Scott í gegn með Alien, óhuggulegri kvikmynd þar sem sýruslefandi ófreskja gekk berserksgang um borð í geimskipi, en myndin var undanfari stórrar bylgju misgóðra framhaldsmynda sem enn sér ekki fyrir endann á. Á þessum rúmlega 30 árum sem liðið hafa frá frumsýningu myndarinnar hefur skepnan fjölgað sér, laumað erfðaefni sínu í menn, lært að synda og barist við Predator í tvígang. Og nú fáum við Prometheus – mynd sem varpar ljósi á uppruna skrímslanna og hvernig þau komust fyrst í kynni við jarðarbúa. Væntingarnar hafa verið gífurlegar og það var löngu vitað að myndin myndi valda vonbrigðum ef reynt væri um of að bera hana saman við hina upprunalegu Alien. Sjálfur hefur Scott verið ragur við að nota orðið „prequel", og er það nokkuð skiljanlegt því þrátt fyrir að tengjast seríunni á ýmsan máta reynir Prometheus að vera sjálfstæð og skapa sína eigin stemningu. Þar tekst leikstjóranum best til og myndmálið er virkilega sterkt. Stílhrein myndatakan dregur fram það besta bæði í íburðarmikilli sviðsmynd geimskipsins Prometheus og landslagi plánetunnar LV-223. En minna hefur verið lagt í handritið og er það persónusköpunin sem er hlunnfarin hvað mest. Nærri helmingur áhafnar skipsins er óeftirminnilegt fallbyssufóður og framan af er mjög óljóst hver aðalpersónan er. Í Alien virkaði það fullkomlega en hér er það til vansa og grunar mig að það skrifist á fljótfærni skríbentanna. Í þessum öfluga leikhópi er það aðeins Michael Fassbender sem fær virkilega að njóta sín, en það er kaldhæðnislegt að hugsa til þess að safaríkasta persónan sé gervimaðurinn í hópnum. Prometheus er þrátt fyrir þetta áhugaverð og kærkomin, sérstaklega ef bág staða vísindaskáldskapar nútímans er tekin með í reikninginn. Það er þó ekki sjálfgefið að ástríðufyllstu aðdáendur Alien-seríunnar taki þessum náskylda frænda opnum örmum, þó hans hafi verið beðið í ofvæni. Niðurstaða: Umgjörðin er glæsileg og andrúmsloftið þrælmagnað. Þess vegna á Prometheus skilið svo miklu vandaðra handrit.
Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fleiri fréttir Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira